Iðunn - 01.07.1885, Page 10

Iðunn - 01.07.1885, Page 10
4 Jónas Jónasson : Hún fekk honum mjólkrkönnu. jpegar hann hafði drukkið nægju sína, sagði hún með áhyggjusvip : »Er þér ilt, elskan mín, þú ert svo fölr!« »Ekki held eg það sé mikið, enn mér er leitt í höfði, og eitthvað undarlega máttlaus. Eg ætla að sofa í þessu rúmi í nótt; það getr orðið ónæðissamt fyrir þig með börnin, að eg sé hjá þér«. »Jæja, þú ræðr því, enn hvað viltu borða?« »Ekki neitt, eg hefi enga matarlyst, eg vil helzt fara að hátta«. Og hann fór að leysa af sér ; kona hans hjálpaði honum iir bleytunni, og þegar hann var kominn upp í rúmið, bauð hann honni góða nótt með kossi. Konan var svo áhyggjufull, að henni lá við að gráta; henni leizt svo illa á veiki bónda síns; enn hann reyndi að hugga hana, strauk hendinni um vanga hennar og sagði: »Eg sef það úr mér í nótt«, kysti hana aftr og snori sór til veggjar. það var seinasti kossinn sem hann kysti hana. — Seint um nóttina vaknaði síra þórðr með svo miklum höfuðórum, að hann ætlaði að stökkva niðr úr rúminu og fara að hamast í bindingunni; það ætluðu engin bönd að halda honum. það varð að vekja Jón vinnumann til þess að vera yfir honum. Valgerðr réði ekkert við bann. Hann sá ótal ofsjónir; honum fanst hanu vera staddr úti í kirkjugarði, og ekki geta komizt fet fram né aftr fyrir opnum gröfum. Síðan sá hann einhverja vera að flá konu sína lifandi, og svo þótt- ist hann vera kominn í Stiklastaða orustu, og kall- aði hátt: »Pram, fram, bændr og búalið«. Hann

x

Iðunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.