Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1915, Side 80
174
Jón Ólafsson:
| IÐL'NN’
eldri bróðir, heldur en eins og prestur og kennari.
Mér varð vel við hann eins og bróður og hélzt það
jafnan síðan, meðan liann Iifði. Lærdómurinn gekk
mjög greiðlega þennan vetur. Hann kendi inér í la-
tínu, sögu, landafræði og reikningi alt, sem ég þurfti
undir skóla. í dönsku og íslenzku sagði liann, að ég
þyrfti engrar kenslu ineð; en þó lét hann mig um
veturinn gera nokkra stýla, þannig að ég snéri dönsku
á íslenzku. Latneska stýla liafði ég nærri daglega,
stöku sinnum explicandum. Þennan vetur fór ég yíir
alla syntaxina í stóra Madvig.
Um vorið fór ég heim seint í Maí; bjó móðir mín
þá á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði, sem var eignarjörð
hennar. í Júnímánuði lagði ég svo að heiman til að
íara í skóla. Var mér fylgt suður á Djúpavog, en þar
náði ég Birni Péturssyni mági mínum, sem reið þá
til Alþingis. Með honum var Stefán bróðir hans, sem
einnig átli að fara í skóla. Næsla dag riðum við að
Stafafelli í Lóni, og gislum að séra Bjarna frænda
míns, föður séra Jóns, og þaðan næsta dag lil Árna-
ness, til Stefáns alþingismanns, frænda míns. IJar
vorum við heilan dag í góðu yíirlæti. Varð Stefán
okkur samferða suður. Það var hvorltveggja að ég
var ungur, enda þótli þeim félögum mínum ég léleg-
ur og liðlétlur ferðamaður. Þegar við komum af baki,
þá lék ég á alsoddi og ærslaðist og lét inunninn
ganga þindarlaust; en þegar við seltumst á bestbak,
reið ég slein-þegjandi allan daginn og datt ekki né
draup af mér. Eg liefði sjálfsagt ekkert tekið eflir
þessu sjálfur, því að mér var þetta eiginlegt, hefðu
þeir ekki alt af verið að gera gys að mér og lýsa
því, hvernig ég væri.
Af nælurstöðum, þeim sem við höfðum á leið-
inni til Reykjavíkur, skal ég að eins minnast á
Fell í Mýrdal. IJar bjó þá séra Gísli Thorarensen;
liann var kvæntur Ingibjörgu dóttur Páls amtmanns
I