Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 4
246 Ágúst II. Bjarnason: [iðunN
en hann veittist einkum gegn hervarna-miðluninni
árið 1909. Zahle kom til íslands i konungsförinni
1907 og fann þá sá, sem þetla ritar, að Zahle var
mjög frjálslyndur maður og velviljaður i garð íslend-
inga. En lítt grunaði mann þó þá, að Zahle yrði
einn af helztu hvatamönnum þess, að samningar,
sem bindu enda á hina löngu stjórnarbaráttu vora
við Dani, gætu tekist milli vor og þeirra. En 1909
varð Zahle forsætisráðherra flokks síns, er þá tókst
á hendur að mynda stjórn, og leysti liann þá upi>
þing á næsta ári til þess að reyna að afla sér og
flokki sinum nægilegs þingfylgis; þetta tókst ekki og
því varð hann að segja af sér aftur á miðju ári 1910.
Studdi hann þá með oddi og egg grundvallarlaga-
breytingu þá, sem þeir Berntsen og Neergaard komu
fram með 1912, og eftir kosningarnar 1913 myndaði
hann aftur nýtl ráðuneyti, og hefir það setið að
völdum síðan, með nokkrum mannaskiflum þó.
Þótt íslandsmálum, eins og kröfunni um heima-
fánann, væri siglt í strand á fyrstu stjórnarárum
Zahle-ráðuneytisins, þá er það sýnt með því, sem
siðar kom fram, að þetta mun frekar hafa verið að
kenna ólagni þess manns, sem þá fór með völd aí
vorri liálfu, en íhaldssemi Zahle-ráðuneytisins í vorn
garð. Því eins og kunnugt er kom Einar Arnórsson
kröfunni um heimafánann fram nokkru síðar. En til
þess að fá fána þennan gerðan að siglingafána,
ímynd sjálfstæðis vors og sérstöðu, þurfti hæði lið"
leika- og hyggindamann, er héldi þélt og fast, en þ°
gætilega og liðlega á vorum máistað við Dani; et1
þann mann fengum A7ér, eins og nú er komið á dag-
inn, þá er Jón Magnússon tók við ráðherratign. E>ns
og kunnugt er, varð hann fj'rsti forsætisráðherra ls-
tands í ársbyrjun 1917.
Forsætisráðherra Jón Magnússon er nú orðmn
of þjóðkunnur maður til þess, að þörf sé á að rekja