Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Síða 10
252
Sigurður Magnússon:
[ IÐUNN
Reykjavík ánægjulega og viðkunnanlega; og enn-
fremur, að þótt hann sé fyrst og fremst íslendingur
og ekkert annað, þá eigi þó Danmörk og dönsk
menning, þar sem hann er, tryggan og vitran vin,
sem vili leguja alt kapp á drengilega og góða sam-
vinnu milli íslands og Danmerkur undir hinum nýja
sáttmála. Á. H. B.
Bætiefni fæðunnar
(Vitamin-efni).
Sjúkdómur er nefndur beriberi. Hann hefir fra
ómunatið verið landlægur í Japan og víða annars
staðar í heitu löndunum, svo sem i Kína, Indlandi
og Brazilíu. Hann legst sérstaklega á taugakerfið og
lýsir sér í lömunum, vöðvarýrnun og vöðvakreppu>
en einnig önnur lífl'æri sýkjast. Ilann er banvænn, ef
ekkert er að gert. það hefir vakið eftirtekt manna,
að sjúkdómur þessi kemur óvíða annars staðar fyrir
en þar, sem hrísgrjón vaxa, og þar sem landslýður
lifir aðallega á lirísgrjónum. Áður möluðu íbúarnii'
hrísgrjónin í svo ófullkomnum handkvörnum, a^
hýðið skildist ekki vel frá kjarnanum, en á síðari
timum hafa Norðurálfumenn ílutt inn i lönd þessi
fullkomnar hrísmyllur, sem hreinsa hrísgrjónin svo
vel, að hýðið og yzta lag kornsins skilst frá, og eftu
verða hin svokölluðu »fáguðu« hrísgrjón, sem eru
hin venjulega verzlunarvara. Nú þótti það undrum
sæta, að beriberi jókst feykilega mikið einmitt eftu
að farið var að nota þessar nj'tízku hrísmyllur og