Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 28

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 28
270 Gilbert l’arker: [ IÐUNN makkana hlið við lilið og hófarnir skullu á sléttunm eins og járnkarlar, og svona fleygðust þeir áfram sem fætur toguðu á harða, helvítis-stökki. — R8 vissi af föntunum á eftir mér, þótt ég sæi þá ekki nema einu sinni á einum hálsinum svona þrjá fjórð- unga úr mílu á eflir okkur. Svona riðum við hverja klukkustundina á fætur annari með 10 mínútna hvíld við og við til þess að fá okkur að drekka eða teygj3 úr fótunum. Við yrtum varla hvort á annað, en ekki get ég neitað því, að mér var farið að hlýna til þess- arar stúlku, sem hafði riðið svona þindarlaust fram undir 40 mílur á 24 tímum. — Rétt fyrir dögun, þegar ég var farinn að halda, að við myndum auðveldlega geta komist undan, el stúlkan þyldi þessa fanlareið, ef hún ekki dræpi hana lireint og beint, rak sá rauðbrúni fólinn ofan í gjótu á sléttunni, svo að bæði stúlkan og hesturinn duttu kylliflöt til jarðar. Hún gat varla hreyft sig, svo var liún orðin þrekuð, og hún var orðin náföl. En hest- urinn var fótbrotinn, svo að ég varð að skjóta hann. Stúlkan beygði sig niður yfir hann og kysti vesalings skepnuna á hálsinn, en mælti ekki orð af munni. Þegar ég lyfti henni upp á Táfeta minn, bar ég var- irnar að hálskraga hennar. Heilaga guðs móðir! livað gal ég annað gerl. Hún var svo ári hugrökk, stúlkan! — Það sást rétt skíma fyrir óljósri grárri dagsbrun úti við röndina á sléttunni, uppi yfir sandhólunun). Og þeir lágu svo skínandi rólegir þarna á dökkgrænni sléttunni. En ég vissi, að það var slrokkur þarna niður undan þeim, er gat koinið þessum sandöldum á hreyfingu og gleypt heilar hersveitir. Hver getui sagt, af hverju þetta stafar? Ef til vill er eitthvert vatnsrensli þar neðanjarðar og í því ýmist flóð eða fjara. Það veit enginn. En þessar sandkvikur eru eins og sjóskrimsli á þurru landi. Dag hvern um sólar- upprás fara þær að iða og kvika, — að mala,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.