Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Qupperneq 34
276
Vilhjálmur Stefánsson:
[ 1O0NN
kunnáttu í málinu. Auk þess var fólkið viðkunnanlegl-
Ekki einungis svo, að það væri hugðnæmt rannsókn-
arefni, eins og raunar allar frumþjóðir, fyrir þann,
sem leggur stund á mannfræði, heldur voru þetta og
glaðlyndir, öruggir og ágætir félagar. Auðvitað hefði
mátt eignast óvini meðal þeirra, en þó frekar vini;
það var eins og fólk ílest, eins og ég og þú, en
mannkostir þess þó á öllu hærra stigi en vor á meðal.
Hin harða lífsbarátta þeirra við þau örðugu kjör,
sem þeir áttu við að búa, hafði kent þeim að lifa
saman í friði og eindrægni.« (bls. 2—3).
Þarna fékk V. St. og með hvalveiðamönnum að
norðan fregnir af Eskimóum, sem um langan aldur
virtust ekki liafa haft nein mök við hvíta menn.
Með háskólafélaga sínum, dr. Anderson, sem var
orðinn leiður á menningarprjálinu, en að öllu ágæf'
lega vel fallinn til slíkrar ferðar, lagði því Vilhj. Stef.
upp í þessa minnisverðu rannsóknarferð 22. apríl 1908.
24. júlí komu þeir að fyrsta Eskimóa-þorpinU
(Eskimo camp) á norðurströndinni við mynni Mack-
enzie-fljótsins. En þaðan fóru þeir vestur á bóginn
með hvalveiðaskipinu »Karluk« til Point Barrow og
lengra. Snéru siðan aftur austur á bóginn með haust-
inu og lentu í Smiths-flóa, mjög á móti vilja sínum-
Pó héldu þeir áfram nokkru síðar til Colville og
nokkuð lensra austur á bóginn til að hitta dr. And-
erson, en sneru síðan við vestur aftur og dvöldu
2 mán. skeið um háveturinn í hvítra manna híbýluBi
í Point Barrow. 6. marz 1909 tóku þeir sig aftur upp
til þess að halda austur á bóginn og hitta dr. And-
erson, sem starfaði að jarðfræði- og dýrafræðisrann-
sóknum í Endicottfjöllum fyrir sunnan Barter-eyju-
Peir fundust, og svo sneri Vilhj. um stutta stund við
til Smiths-ílóa og Point Barrow til þess að búa sig
undir austurferðina að fullu og öllu. Svo lögðu þeU"
af stað austur 25. maí — dvöldu nokkra stund meðal