Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 40

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 40
282 Vilhjálmur Stefánsson: [iÐUNN eða jakkanum, sern hún gæli stagað saman fyrir mig- Hún hefði soðið handa mér ögn af selskjöti, en ekk- ert spikið, af þvi að hún vissi ekki, hvort ég vild' það hrátt eða soðið. Sjálf brytjuðu þau það niður > smábita og ætu það hrátt; en enn héngi potturinn yfir ljóskerinu, svo að það væri hægur hjá, og soðið væri það á svipstundu. Þegar ég sagði henni, að mér þætti það líka bezl hrátt, gladdi það hana mikillega. Menn líktust þa hver öðrum, jafnvel þó þeir kæmu langt að. Hún myndi þvi fara ineð mig alveg eins og hvern af sínum eigin ættstofni, sem kominn væri til þess að heimsækja hana langar leiðir að; og i raun réttn hlyti ég að vera af hennar stofni, því að hún hefði heyrt, að árans Ilauðhundarnir, er byggju sunnar, töluðu annarlegt mál, en ég talaði aðeins með litlum útlenzkublæ. Þegar við komum inn, var búið að færa selskjötið upp úr pottinum og rauk nú af því, þar sem það la á skákinni. Þá er húsmóðirin hafði orðið þess a- skjmja, að ég mundi hafa líkan smekk og hitt fólkiö, skamtaði hún mér framhreyfann af sel, hristi hann milli handa sér, lil þess að vera viss um, að ekkr drypi af honum, og rétti mér hann síðan ásamt eir- hníf sínum; næstbezta bitann rétti hún svo bónda sínum og skamtaði síðan hinu fólkinu á líkan hátl* Þegar þessu var lokið, var enn tekinn frá biti, mig skyldi Ianga í meira; en liinu, sem eftir var, skiít i fjóra parla, að því er mér var sagt, til handa fjórum fjölskyldum, sem áttu ekkert ferskt selskjöt. Litla fósturdóttirin, sem var sjö—átta ára, var ekki farin að borða, en tók nú trébretti og færði fjölskyldum þessum kjötið. Mér varð á að hugsa, að þessir 4 bitar, sem burt voru sendir, væru mun minni en skamtur hvers okkar hinna, og að þeir sem fengjn mundu naumasl fá fullan saðning af; en svo sögðn

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.