Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 48

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 48
290 Villijálmur Stefánsson: I IÐUNN hefðu feður þeirra haft margt að segja, en ekki til hins fjarlægari kynþáttar, sem félagi minn Natkusiak væri kominn af, enda væri sú mállýzka ólíkari en okkar og þeir hefðu ekki heyrt um þann kynþátt getið fyr en í gær. En — fanst þeim þá ekki, að ég væri undarlega eygður (augnliturinn blár) og skrítinn litur á skegginu (sem var Ijósjarpt), og fanst þeim ekki líklegt, að ég væri einhverrar annarar þjóðar? Svarið var alveg afdráttarlaust: — »Við höfum engn ástæðu til að halda, að þú sért annarar þjóðar. Mál þitt er að eins ofurlítið ólíkara okkar máli en mál þeirra kynþátta, sem við verzlum við á hverju án, og að því er snertir augu þín og skegg, þá svipaf því mjög til suinra nábúa vorra fyrir norðan, sem þú verður að heimsækja. þetla eru beztu vinir okkar, og það mun angra þá mjög, ef þú heldur lengra austur á bóginn án þess að heimsækja þá«. — Við komum okkur þvi saman um, að við skyldum a morgun heimsækja þetta fólk á Vicloríu-eyju, sem nú hafði verið lýst svo fyrir mér, að ég gat hugsað að hitta þar eflirkomendur einhverra af mönnum þeim, er fórust í Franklíns-leiðangrinum. — Nú veit ég raunar, að þetta verður að skýra á annan hátt. Eitt af því, sem mér Iék einna mest hugur á, var að sjá þá skjóta eiryddum örvum af þessum sterk- legu bogum, sem þar voru í hvers manns eigu. Því sagði ég þeim, að mig langaði lil þess að sjá, hvernig þeir bæru sig að með að veiða hreindýr, og skylði ég svo í staðinn sýna þeim vopn þau og aðferðir, við notuðum. Sex menn sendu þegar heim eftir bog- um sínum, en snjóvarða, sem höfð var að skotmarki, var hlaðin gegnt húsinu. Færið, sem unt var að hitta í mark, er var 1 fet að ummáli, nokkurn vegion reglulega á, var frá 40—50 álnir, og það, sein bogarnn drógu lengst, voru liðugar 150 álnir, en færið, sem hreindýrin venjulegast voru skotin á, voru liðugar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.