Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 60
302 Ágúst H. Bjarnason: IIÐUNN var allsendis óhæf til þess að ala nokkurt lifsfrjó í skauti sér. En svo að vér sjáum, hversu ástatt var, skulum vér reyna að setja oss það sem skýrast fyrir hugskotssjónir. Sú var tíðin, að jörðin var glóandi hnöttur líkt og móðir hennar, sólin, er enn þann dag í dag. Berg- tegundir þær og málmar, sem nú mynda jarðskorp- una, voru þá eldur glóandi og eimyrja og sjóðheitt gufuhvolfið sveipaði hinn glóandi hnött skýjareifum sínum. Þá var svo heitt hér á jörðu, að hitinn hefir numið þúsundum stiga, og ólgan og æsingin í hin- um bráðnu, fljótandi og loftkendu efnum hefir verið feykileg, En svo liefir yfirborðið fyrir hina megnu útgufun til himinhvolfsins farið að smákólna, og á yfirborði jarðar hafa farið að myndast skæni eða skánir af fóstuin efnum. Síðan hefir storknun þessari haldið áfram sí og æ, þrátt fyrir ítrekuð eldsumbrot og þar af leiðandi jarðrösk, þangað til föst skorpa var komin á allan hnöttinn. Og upp frá því hefir skorpa þessi verið að smáþykna, þangað til hún var orðin það, sem hún nú er. En ennþá eimir eftir af glóð- inni í iðrum jarðar, — það sýna bezt jarðskjálft' arnir og eldgosin, hverarnir og hinar heitu laugar. Þegar jarðskorpan var mynduð, tók eðlilega út- gufunin út í himingeiminn og hilamagnið á sjálfn jörðunni að minka. En af þessu leiddi það, að gufur þær, sem voru í gufuhvolfi jarðar, tóku að þéttast og féllu þá smámsaman til jarðar ýmist sem úði eða regn. Vatnið safnaðist fyrir í dældum og dölum varð smámsaman að vötnum þeim og höfuin, ei síðan hafa verið á yíirborði jarðar, þótl þau hafi breyzt allmjög, eftir því sem jarðskorpan hófst eða seig hér og þar. Þegar hér var komið sögu og orðin var skiftmg

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.