Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 61
ÍÖUNN1
Heimsmyndin nýja.
303
lofts, láðs og lagar, munu flest þau efni og efnasam-
bönd, loftkend, föst og fljótandi, hafa verið til orðin,
sem nú finnast hér á jörðunni, að minsta kosti öll
hin svonefndu ólífrænu fóorganiskul efni og efnasam-
bönd. En hvar, hvenær og hvernig urðu þá hin líf-
tænu (organisku/ efnasambönd til? Og á hvern hátt
varð lífið sjálft til? Þetta er fifldjörf spurning. En að
hverju spyr ekki mannsandinn?
Að lífið og hin lífrænu efnasambönd hafi farið
að þróast hér á jörðu á vissu þroskastigi hennar, er
ongum efa undirorpið. Það sýna jarðlögin oss.
Spurningin er nú að eins þessi, hvort lífið sé aðflutt
oða hvort það hafi orðið til hér á jörðu. Nú höfum
vér séð í kaflanum hér á undan, að það eru mjög
litlar líkur til, að það sé aðflutt. En hefir það þá
getað þróast hér á jörðu fyrir eðlilega samfelda þróun
Upp af hinum svonefndu ólífrænu efnasamböndum?
Vér hljótum að játa þessari spurningu, því að ef vér
rennum augunum yfir jarðaldirnar og það, sem hin
tnismunandi jarðlög hafa að geyma (sbr. »Iðunni«,
ÍV, bls. 56), þá sjáum vér, að á eftir upphafsöldinni
Og eftir að fornbergið var myndað, kemur frum-
Hfsöldin með kalksteins-, sandsteins- og leirlögum
sínum. Þau eru upprunalega mynduð af vatni eða
eru réttara sagt undanlásinn (sedimeniið) undan því,
það sem sezt hefir fyrir úr því, og í sumum af þess-
otn sandsteinslögum íinnast nú einmitt fyrstu minjar
iifsins hér á jörðu, ýmsar lindýra- og krabbategundir,
°g það sem meira er, þar vottar og fyrir efnasam-
böndum> sem að öllum líkindum hafa verið undan-
farar lífsins hér á jörðu.
Það eru því allar líkur til þess, að lífið sé til
orðið og hafi farið að þroskast hér á jörðu á vissu
þroskastigi hennar, og ennfremur, að það hafi haft
^ðalbækistöð sína í hinum volgu höfum þeirra tíma.