Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Síða 65
IÐUNN]
Heimsmyndin nýja.
307
nú bezt að taka með varúð að svo komnu máli, og
hitt miklu betra að reyna að gera sér skiljanlegt,
hvernig viðfangsefni þetta horfir við efnafræðingun-
um, og í hverju lífsgáta sú, sem þeir ætla sér að
reyna að ráða, er eiginlega fólgin. —
Fyrstu lífsverurnar, sem til urðu, urðu að geta
haldist við á ólifrænum efnasamböndum, þvi að öðru
var þá ekki til að dreifa. Nú er það vitanlegt, að
llestar jurtir lifa enn þann dag í dag á ólífrænum
efnum og breyta þeim í lífræn efnasambönd. Og líks
eðlis hljóta hinar fyrstu lífsverur að hafa verið, hafa
haft sama hæfileikann. En hvernig fara þá jurtirnar
að þessu; hvaða tilfæringar hafa þær til þessa?
Þær fara að þessu á þá leið, að þær með hinni
svonefndu blaðgrænu sinni (chlorophylj, sem er
fiókið lifefnasamband, safna að sér sólarljósinu eða
geislaorku sólar og breyta henni i efnaorku, sem þær
svo nota til þess bæði að kljúfa hin ólífrænu efna-
sambönd í frumefni þeirra og búa siðan til úr þeim
'ifræn efnasambönd, er þær geta lifað á. Á því stigi
þróunarinnar, sem vér enn erum á, lifa nú allar lifs-
verur jarðarinnar beint eða óbeint á þessari einu
oi'kulind, sólarljósinu, hinar grænu jurtir beinlínis
'neð því að hagnýta sér það til þess að búa til líf-
ræn efnasambönd, hinar aðrar lifsverur óbeinlínis
>neð því að lifa bæði á jurtum og öðrum lífsverum,
sem þegar hafa þessi lífrænu efnasambönd i sér fólgin.
í sjálfum jurtunum hafa þeir partar jurtarinnar,
sem ekki hafa neina blaðgrænu til að bera, ekki
heldur neinn mátt lil að búa til lífefni úr ólifrænum
ehiasamböndum, enda fá þessir partar jurtanna líf-
efnasambönd sín frá hinum grænu pörtum þeirra, og
0rkuna úr þeim nota þeir svo í sínar þarfir, sumpart
ffi þess að vaxa og þróast og búa til ný lífefnasam-
sainbönd, en sumpart til að geyma hana sem orku-