Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 66

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 66
■308 Ágúst H. Bjarnason: [IÐUNN forða til handa sjálfum sér eða næstu kynslóðum i líki rótarknúða, ávaxta eða sæðis. Raunar eru líka til jurtir og jurtkynjaðar verur, sem ekki liafa neina blaðgrænu til að bera og verða því að lifa af öðrum jurtum eða dýrum. Þess vegna eru þær nefndar afætur (parasiler). Slíkar lífsverur eru t. d. sumir þörungar og kinar svonefndu sótt- kveikjur (baderia), svo og ýmsir rotnunargerlar. Allar þessar lífsverur leitast við að sundra og uppleysa lífsvefi annara jurta og dýra til þess að ná í orku þá, sem í þeim er fólgin, sjálfum sér til handa. Þannig herja sóttkveikjurnar með eiturvessum sínuin á orkuforðabúr jurta, dýra og manna, fjöleindirnai' i lífsvefjum þeirra, og leysa þær jafnframt sundur, en orkuna úr þeim nota þær til viðhalds sjálfum ser. Rá eru dýrin. Þau nærast líka á jurlalíkömunum eða á öðrum dýrum og innbyrða um leið orkuforða þeirra. Með meltingarvessum sínum brjóla þau upP forðabúr eða orkugeyma jurta og dýra, fjöleindirnar úr lífsvefjum þeirra, og úr næringarefnum þessum búa þau sér svo til ný efnasambönd, nýja orku- geyma, sem ef til vill eru enn flóknari, sem sé fjöl" eindir þær, sem finnasl í hinum lifandi dýrafrumum. Nokkur hluti af næringarforða dýranna er nú raunar sýrður (oxyderaður) með lífsloftinu og efnasambönd- um hans sundrað í ólífræn efni til þess að ná ur þeim nægilegri starfsorku (akluel energi) handa lífs" verunni; en hinn hluti næringarforðans er geymdur sem staðbundin efnaorka eða staðorka (potenti^ energi) í hinum flóknu efnasamböndum lífsvefj3 hennar og ekki notaður fyr en til þarf að taka. Þannig má segja að allur hinn lifandi heimur liö beint eða óbeint á orkuforða þeim, er jurtirnar hafa safnað sér með blaðgrænu sinni úr geislamagni sólar, og eru því allar lifandi verur beint eða óbeint sann- kölluð ljóssins börn. En ekki er hinu heillaríka

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.