Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 69

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Page 69
iðunn] Heimsmyndin nýja. 311 forða sinn, þangað til hann verður hagnýttur á einn eða annan hátt. Nú eru efnasambönd blaðgrænunnar alt of marg- brotin til þess, að þau geti táknað fyrsta skrefið úr ríki hinnar líívana náttúru yfir í heim hinna lifandi vera, enda getur blaðgrænan, eins og sýnt hefir verið, ekki orðið til eða starfað á viðeigandi hátt nema í sambandi við lífsvefi þá, sem hún er orðin til í. En samt sem áður gefur alt starf blaðgrænunnar oss visbendingu um, hvar ráðningarinnar á lífsgátunni er helzt að leita og hverskonar tilraunir menn eiga helzt að gera á efnarannsóknarstofum sínum, ef þeir ætla sér að reyna að byggja brúna milli hins lifvana og lifanda heims. Því að nú sjáum vér, að lífsstarfið hefir í fyrstu aðallega verið í því fólgið að breyta sólarorkunni í efnaorku og beita henni síðan til þess að búa til ýmiskonar lífefnasambönd. Ef vér nú hugsum oss jörð, þar sem engar lifs- verur eru enn orðnar til og þó öll helztu lífsskilyrði fyrir hendi, þá er það augljóst af því, sem að ofan greinir, að þó að einhver sóttkveikja eða önnur ein- frumuð vera kæmi þar skyndilega í ljós, þá væri spurningin um uppruna og viðhald lífsins ekki leyst með því, því að slík lífsvera hlyti að farast jafn- skjótt og hún yrði til, þar eð hún hefði engin lifræn efni að nærast á. Og þótt ekki væri um annað en hlaðgrænusambönd að ræða, þá væri óhugsandi með heirri þekkingu, sem vér nú höfum, að þau gætu íifað og þrifist ein út af fyrir sig í slíkri veröld og starfað að þvi að framleiða lífræn efnasamböud. Þar yrðu fyrst að verða til ólífræn efnasambönd, ólíf- rænar fjöleindir, er síðan gætu af sér einfaldari lif- raenar sameindir (organisk moleknl) með meira orku- ^agni en efni þau og efnasambönd, sem þær væru °rðnar til úr. En til þess að slík lífræn sameind gæti haldið áfram að lifa og þróast, yrði hún að geta *21

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.