Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Side 72
314 Ágúst H. Bjarnason: jiðunn
hinum lægstu lífsverum, sem orðið hafa til hér á
jörðu. En eyðan, sem enn er ólesin, greinir að Hk'
indum frá því, hvernig þær hafi orðið til.
En er þá nokkur von til, að vér getum nokkuru
sinni útfylt þá eyðu? Ekki verður neitt fullyrt um
það. En geta má þó þess að lokum, sem þegar heíir
verið haldið fram um þetta.
Englendingurinn, dr. Charlton Bastian, hefir
fullyrt, að sér hafi þegar tekist að framleiða lifandi
smáverur af ólífrænum efnum, og er það eftirteklar-
vert, að þetta er einn af hinum gömlu andstæðing-
um Pasteur’s, er hélt því fram bæði gagnvart hon-
um, svo og Huxley á Englandi, að sjálíkveikja lífsins
væri hvorki óhugsanleg né beldur ómöguleg. Hann
hefir nú ritað bók um nýjustu tilraunir sínar í þessu
efni, sem jafnvel sérfræðingar hafa lokið lofsorði á,
.enda þótt þeir á hinn hóginn hafi látið í Ijós rnjög
sterkar efasemdir um, að þessar tilraunir hans séu
óyggjandi.1)
Dr. Bastian heldur því nú fram, að ef tvær upp*
lausnir ólífrænna efna, sern hann lýsir nánar í bók
sinni, séu dauðhreinsaðar við 100 —115° C. hita, eftir
að þeim hefir verið komið í innsigluð loftþétt bylk*
og síðan látnar eiga sig um nokkurra mánaða skeið,
þetta frá þrem til sex rnánaða, þá komi í ljós siná'
verur af ýmsu tagi, sem alls ekki hafi orðið greindar
né sést í hinum upprunalega vökva. Þessar smáveiui
séu svonefndar: micro-cocci, toralœ, vibriones o. s. ffVi
En vökvarnir, sem liann gerði tilraunirnar með>
voru að hans eigin sögusögn þannig samsethr:
a., natrium silikat, ammonium phosphat og fosfor-
sýra útþynt í dauðhreinsuðu vatni; b., natrium sih'
kat og svonefnt »per-nitrat« af járni, einnig í dauð-
1) Baslian, Charlton: The Origin of Life, 1911, Watts *
Co., London.