Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1919, Síða 74
316
Á. H. B.: Heimsmyndin nýja.
[ IÐUNN
ofanskráðu, er sú, að dr. Bastian getur ekki um nem
lífræn efnasambönd, er myndast hafi sem milliliðir
milli hinna ólífrænu efnasambanda á annan bóginn
og lífsveranna á hinn bóginn. En þetta var auðvitað
ekki unt að sanna nema með því að opna hylkin a
ýmsum tímum og prófa vökvann, en þá voru auð-
vitað »klak-tilraunirnar« með þau hylki ónýt. 1
sumum hylkjum, sem geymd voru i klakofni, varð
klakið nokkuð minna og ófullkomnara, en klakofn-
inn var hitaður með rafljósi, sem haft var innan >
honum, svo að hér gátu þó efnasamböndin líka hag'
nýtt sér eina tegund geislaorku. Einnig er eftirtektar-
vert, að efnasamsetningin í vökvunum var, eftir þy1
sem sérfræðingar segja, einmitt liin hagkvæmasta fyrir
myndun þeirra fjöleinda (colloida), er bezt geta f®rt
sér allskonar geislaorku í nyt. — Dr. Bastian er nu
að endurtaka tilraunir sínar á annan hátt og meo
ýmsum öðrum varúðarreglum en hann beitti áður til
þess, ef unt er, að ganga úr skugga um, að hinum fýrrl
tilraunum sínum hafi ekki verið áfátt í neinu verulegn-
En hvernig sem nú þessum tilraunum lýkur og
jafnvel þótt það komi á daginn, að þær geti alls ekk1
úr því skorið, hvort sjálfkveikja lífsins af ólífrænum
efnum sé möguleg, þá hafa þó íhuganir þær, sem að
ofan eru skráðar og mestmegnis lýsa skoðunum
annars merks liffræðings á uppruna og eðli lífsins, )
vonandi fært öllum hugsandi mönnum heim sannmn
um, að raunveruleg lausn á »lífsgátunni« er alls ekk1
óhugsanleg. Menn skyldu því ekki furða sig svo mjog
á því, þótt fregnir kæmi um það innan skemri eða
lengri tíma, að einhverjum efnafræðingum hefði tek"
ist það, sem mestu hugsæismenn mannkynsins he,,r
dreymt um nú um aldaraðir, að líkja eftir móður
vorri, náttúrunni, og kveikja — »nýtt líf«. ____
1) Ben. Moore: The Origin and Nature of Life, Honne
Univ. Library, nr. 62.