Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1926, Qupperneq 61
ÍÐUNN
Heimsendir.
139
gamla heims. Verða svo leifar þær uppistaða annara
veralda, líkt og garnið í vef Penelópu. Hún óf hinn
sama vef samfleytt í 20 ár, en rakti upp á nóttum það
sem hún óf um daga, svo að aldrei lyki hún vefinum.
Ásgeir Magnússon.
Alþjóðabandalagið.
Það er erfitt að segja með fullri vissu, hvar falið
liggur fyrsta frækorn hugmyndarinnar um samtök milli
þjóðanna, til að forðast styrjöld. Löngu áður en styrjöidin
mikla braust út, báru margir kvíðboga fyrir, að sam-
kepni stórveldanna um efling vígbúnaðarins mundi um
siðir leiða til ægilegri ófriðar en nokkru sinni áður.
Framsýnum friðarsinnum var það fullljóst, að rammar
skorður yrði að reisa, ef aftra ætti ófriðnum. Tilraunir
þessara manna urðu þess valdandi, að stofnað var til
fundanna í Haag. Markmið fyrstu tveggja þessara funda
(1897 og 1904), var aðallega takmörkun vígbúnaðarins.
Þegar stríðið hófst, var undirbúningur undir 3. Haag-
fund kominn allvel á veg. Búist var við, að fundur þessi,
sem átti að fara fram árið 1915, myndi samþykkja, að
Haagfundirnir skyldu haldnir með ákveðnu millibili, t. d.
sjöunda eða áttunda hvert ár. Fundurinn 1915 átti að
halda áfram í sömu átt og hinir tveir fyrstu, eða eink-
um hinn síðari: Vinna að alþjóða löggjöf um hernað og
fyrirkomulagi stofnunar, er úrskurðað gæti misklíð milli
ríkja. Menn gerðu sjer litlar vonir um, að sjálft tilefni
fyrsta fundarins, sem sje takmörkun vígbúnaðar, yrði