Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Side 11

Kirkjuritið - 01.11.1936, Side 11
KirkjuritiS. Píslarvætii Pcturs og Páls postúla. 361 frá þessum stöðum og þar á meðal sú áletrun eða stafir úr henni. Hún er á þessa leið: „Þú sem spyrð um nöfn Péturs eða Páls skall vita, að hér bjuggu fyrrum liinir heilögu menn. Austurlönd sendu oss þá postula, vér könnumst fúslega við það þeir liafa nú fylgt Ivristi á stjörnuvegum og eru komnir í himneskt skaut og ríki trúaðra en við hlóðugt písl- arvætti þeirra hefir Róm fengið réttinn til þess að telja þá borgara sína. Þetta kveður Damasus vður til lofs, nýju stjörnur“. Orðin „bjuggu“ geta að vísu táknað sama sem „hvíldu“, háru beinin, en í eiginlegri merkingu gefa þau til kynna, að þarna hafi þeir postularnir Pétur og Páll átt heima, og kemur þá trauðla til greina annar tími en sá, sem liður frá endurkomu I3áls til Róm og þangað til þeir verða handteknir af keisaravaldinu. í þessu titla húsi, sem þar liefir verið áfasl stórum húgarði, var gotl að dyljast, og postularnir liafa leitt safnaðarfólkið í gleði og sorg, lífi og dauða og orðið því svo hjartfólgnir báðir, að ekki hefir verið minst svo annars þeirra, að hinn kæmi þá ekki einnig í hug. Þannig hefir liðið mánuður eftir mánuð og hlóð píslarvottanna sífelt orðið útsæði kirkjunnar. Við þessa tíma er tengd forn og fögur helgi- saga, sem hefir mikinn andlegan sannleika að geyma, eins og hún er í upphaflegri mynd. Ætla ég j)ví að segja liana þannig, enda varð hún mér enn minnisstæðari við komu mína til kapellunnar „Quo vadis“ við Via Appia, en inni jiar er Kristsmynd Michaels Angelos og fótspor Krists höggvin i marmara, eins og menn hugsuðu sér þau á j)jóðveginum eftir fund |)eirra Péturs: „Lögregla Rómahorgar liafði hafið leit að Pétri alveg sérstaklega og skvldi honum engrar undankomu auðið. Þá fóru vinir hans til hans og báðu hann að forða sér á flótta: „Ó, þú, sem ert tryggastur af feðrunum, minstu orðanna, er þú sagðir svo oft, að þú værir fús til að fórna lifi þínu til Jiess, að vér gætum verið öruggir. Megum vér

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.