Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 27

Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 27
Kirkjuritið. Kirkjulegir fundir. 377 En skýrsla fyrir síðarnefna fundinn hefir þvi miður ekki enn borist Kirkjuritinu. Aðalfundur Prestfélagsdeildarinnar var vel sóttur og ánægju- legur. Sátu hann 12 prestar og prófastar. Guðsþjónusta fór fram i kirkjunni að kvöldi fyrra fundardagsins, þjónaði séra Sigur- geir Sigurðsson prófastur fyrir altari, en séra Sigurður Z. Gísla- son prédikaði. Mörg mál voru tekin til meðferðar á fundinum og ýmsar samþyktir gjörðar, m. a. þessar: „Prestafélag Vestfjarðar beinir þeim tilmælum til Sunnlend- inga og annara í hinu forna Skálholtsbiskupsdæmi. að vinna að því, að nýjar kirkjur verði reistar í Skálholti og á Þingvöllum. Einnig telur fundurinn sjálfsagt, að í framtíð sitji prestar á Hól- um í Hjaltadal, á Þingvöllum og i Skálholti, og heitir á þjóðina að vera samhuga um að halda þessum fornhelgu stöðum í heiðri“. ..Fundurinn skorar á kirkjustjórnina að verða við þeirri ósk safnaðanna i Dýrafjarðarþingum, að leggja þau ekki undir Sanda- prestakall við næstu prestaskifti, heldur láta þau vera sérstakl prestakall áfram“. „Fundurinn skorar fastlega á þing og stjórn að samþykkja hæli fyrir vanþroska og andlega vanheil börn, ennfremur drykkjumannahæli, og sjá um, að slík hæli verði reist hér á landi sem alha fyrst“. „Prestafundur Vestfjarða ályktar að skora á kirkjustjórn ís- Iands að hlutast lil um, að meðal hinna mörgu íslendinga, sem dvelja langvistum í. Kaupmannahöfn, sé stofnað til meiri kirkju- legrar starfsemi, svo að hinn íslenzki æskulýðlir eða þegnar yfir- leitt, sem þar dvelja, séu ekki íéngur cins einangraðir frá kirkju þjóðar vorrar og hingað til hefir verið“. „Fundurinn vill vekja athygli á hugmynd Jens Bjarnasonar um Vidalínsklaustur og óskar þess. að kirkjuvinir taki málið til yfirvegunar“. „Fundurinn skorar á Alþingi, að veita ríflegan styrk til bygg- ingar aðseturs handa uppgjafaprestum og prestsekkjum. Telur fundurinn nauðsynlegt, að stefnt sé að því marki, að fátækir uppgjafaprestar og prestsekkjur geti fengið ókeypis húsnæði á aðsetursstað þessum í elli sinni“. Síðari fundardaginn flutti séra Böðvar Bjarnason erindi í kirkj- unni. Nokkurar umræður fóru þar einnig fram í heyranda hljóði. Aðsókn að kirkjunni var jafnan mjög mikil. Kirkjufundur fyrir Norðlendingafjórðung var haldinn í sam- handi við prestafund Hólastiftis 6. og 7. sept. á Akureyri. Fundurinn hófst með guðsþjónustu i kirkjunni. Séra Helgi

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.