Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 14

Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 14
3(54 Ásmundur Guðmundsson: Kirkjuritið. austan, hann ætlar söfnuðununi þann arf, og möttulinn sinn langar liann til að fá fyrir veturinn. Hann veit, hvað að fer. Ýmsar myndir líða honum fyrir hugarsjónir. Hann sér hátiðahöld, sem lýkur með því, að dreypifórn er færð. Hann sér hermann, sem kippir upp hælum og tjaldsúlu, vefur saman tjald sitt og leggur upp á nýjan áfanga. Hann sér kappleikavöll, sem verður sífelt stærri og stærri, unz hann nær alla leið frá upprás sólar til endimarka vestursins. Kristnir skarar keppa fram, boð- berar guðsríkis á jörðinni. Við markið stendur hann, sem verðlaunin veitir Kristur. „Það er nú svo komið'h skrifar hann, „að mér verður fórnað eins og dreypifórn, og tíminn er kominn, að ég taki mig upp. Ég hefi barist góðu barfáttunni, hefi fullnað skeiðið, hefi varðveilt Irúna. Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins, sem drottinn mun gefa mér á þeim degi, hann hinn réttláti dómari, en ekki einungis mér, heldur og öllum, sem elskað hafa opinberun hans“. A bak við þennan dýrlega bréfkafla, sem vér eigum síðastan frá hendi Páls, má enn finna eins og máttuga undiröldu enduróma frá 22. Sálmi, sem Jesús hafði í Iiuga á deyjandi degi, og frá Faðirvorinu. Svo beið hetjan frá Tarsus dauða síns eða réttara sagl hins nýja lifs. Pétur postuli var síðar fangelsaður og skemri dýflissu- vist hans, en verri. Það þurfti ekki langan málarekstur né heldur var vandgert við fiskimann austan úr Galíleu. Ég hefi komið í myrkrastofuna, þar sem hann hefir að líkindum veidð geymdur. Hún er við Capitolium og Forum Romanum og var þar aðalfangelsi Rómaborgar lengi. Hið efra er nú „Fangelsiskirkja Péturs“, en um 12 fet niðri í jörðinni er dýflissa. Hrjúfir múrveggir eru á allar ldiðar, en steinhvelfing yfir. Þrep eru niður að ganga, en fyrrum voru fangarnir látnir síga niður uni lúku. Niðri gjörðust um langan aldur hryllilegir atburðir. Þar voru samsærismenn Catilinu kyrktir hver af öðr-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.