Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Blaðsíða 20

Kirkjuritið - 01.11.1936, Blaðsíða 20
370 Ól. B. Björnsson: Kirk.juritið. En svo kemur hnignunartímabil kirkjunnar, livað þetta snertir. Kirkjudagurinn lagðist smátt og smátt nið- ur. Búnaði kirknanna lirakar. Ógrynnum er ruplað, eða týnast. En tiltölulega lítið! hætist við, nema [tá af þeim gripum, sem engin kirkja gat án verið. Fram um síðustu aldamót er tiltölulega lítið gert að þvi af almenningi að afla kirkjunum góðra gripa, til að skreyta þær, eða gera þær vistlegri á einn eða annan hátt. Þá var í fáum kirkjum ofn eða hljóðfæri. Um þetta leyti fara svo konurnar að þjappa sér sam- an til félagslegra samtaka (kvenfélögin) Snerist þá starl' þeirra fyrst og fremst, samkvæmt eðli þeirra og innræti, að meginhugsjón kirkjunnar á öllum öldum: Að styðja og efla það, sem háleitt er, gott og göfugt, að lina þrautir liins sjúka, og gefa þeim þurfandi brauð. Þá fóru þær og með miklum dugnaði að afla kirkjum sínum góðra gripa, hafa nánari gætur á hirðingu þeirra, og gera þær á margan hátt vistlegri en áður var. Konurnar hafa þvi átt mikinn þátt í því að endurvekja markmið hins forna kirkjudags, til mikils gagns og hlessunar fyrir kirkju landsins. Líklega hefir kirkjudagur hvergi verið upp tekinn aftur liér á landi nema á Akranesi. Og af því að þeim sið hefir verið haldið þar síðan 1923, vil ég segja nokk- ur frá reynslu hans og árangri. Kirkjudagurinn er haldinn á Allra heilagra messu, með viðhafnar guðsþjónustu eftir því sem föng frekast leyfa. Til söngs er vandað svo sem hægt er. Hátíðasöngv- ar sungnir. Kirkjan er öll ljósum prýdd. Konurnar skreyta liana með blómum. Skírnarfonturinn er skreyttur blómum og settur fram- anvert við kórinn. I ræðu sinni minnist presturinn þessa dags, sem kirkjuhúsinu er sérstaklega lielgaður. Þar minnast sóknarmenn þess nána sambands, sem er á milli þeirra og sóknarkirkjunnar alt frá því er þeir voru ómálga börn. Þá er og minst þeirra, sem farnir eru á

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.