Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 24

Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 24
Kirk.iuritið. HEIMSÓKN PRÓF. HALLESBY. Eins og flestum eða öllum lesendum Kirkjuritsins er vafalaust kunnugt, kom hingað í siðastliðnum mánuði prófessor 0. Hallesby, frá Safnaðarliáskólanum (Menig- hedsfakultelet) í Osló. Með honum voru 6 háskólamenn, einn kandidat í guðfræði, tveir guðfræðistúdentar og þrír læknisfræðistúdentar. Var aðaltilgangur með för þessari sá, að endurreisa og efla hér deild i alþjóðafé- lagsskap kristilegu stúdentahreyfingarinnar. En auk þess flutti prófessor Hallesby 6 háskólafyrirlestra og fjölda prédikana og erinda bæði i kirkjum, skólum og samkomuhúsum, og mun hann hafa flutt yfir 20 erindi á þeim hálfsmánaðartíma, sem hann dvaldi hér, auk þess sem hann hefir vafalaust flutt stuttar ræður miklu fleiri, og má það heita mikið starf. Prófessor Hallesby hefir verið allfyrirferðarmikill i norsku kirkjulífi á undanförnum áratugum. Hefir þar staðið um hann bæði styrr og líf. Hann hefir orsakað klofning og komið af stað vakningum, eins og tílt er um „sterka“ menn alstaðar og á öllum tímum. Ekki var heldur laust við, er hans var von hingað, að nokkur ugg- ur væri í sumum og óróleiki yfir því, að eitthvað mis- jafnt kynni að hljótast af komu hans. Annars hefir það nú öllu heldur þótt einkenna íslendinga, að þeir tækju hverskonar boðskap með hugarró, og hefir jafnvel þótt kenna tómlætis hjá þeim í þessum málum, svo að skað- laust mætti heita, þó að einhver stormsveipur færi yfir okkar andlega líf. * Allur ótti við hættulegar afleiðingar af komu próf.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.