Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.11.1936, Blaðsíða 26
376 Kirkjulegir fundir. KirkiuritiS. ósveig'janlega sannfæring og bardagalund fyrir málstaf* sínum, og lilýtt Iijarta, sem engum vill annað en gott. Próf. Hallesby fjdgja áreiðanlega blessunaróskir margra og þakklæti fyrir komu hans bingað, og undir bænum hans bygg eg að inargur kjósi að vera, — jafn- vel hvað sem skoðunum líður. Stúdentarnir, sem með próf. Hallesby komu, liafa og livervetna getið sér liið ágætasta orð. Þrír þeirra fóru til Akureyrar og dvöldu þar uin bríð og héldu samkom- ur við mikinn ábuga manna. Aðrir þrir fóru til Vest- mannaeyja og fer sama orð af komu þeirra þangað. Óhugsandi er annað en af þessari heimsókn leiði gott eitt. Og vonandi er, að för þeirra beri þann árangur, sem henni var sérstaldega ætlað, að liér hefjist kristileg stúd- entalireyfing, til gagns og blessunar bæði þeim mönnum, sem bún nær til, og stúdentalífinu til aukins kraftar og fegurðar M. ./. KIRKJULEGIR FUNDIR. Fundur Guðbrandsdeildar að Hólum 1(). ágúst hófst með há- tíðlegri guðsþjónustu í dómkirkjunni. Séra Sigurgeir Sigurðsson prófastur var fyrir altari, en séra Gunnar Árnason prédikaði. Söngflokkur frá Sauðárkróki söng. Fjölmenni viðstalt. Á fund- inum var einkum rætt um bindindi og fluttu þeir framsöguræður séra Guðbrandur Björnsson prófastur og Jón Björnsson skóla- stjóri. Þessi ályktun var gjörð: „Fundurinn telur það ástand, sem nú ríkir i áfengismálunum. með öllu óviðunandi og hina óhæfilegu nautn áfengis og tóbaks hættulega fyrir þroska þjóðarinnar og öll þjóðþrif. Vilja fund- armenn vinna, hver á sínum stað, að umbótum í þessu efni á livern þann hátt, er þeir telja, að að haldi megi koma“. Mikill áhugi kom fram á því, að Hólasöfnuður fengi að halda presti sínum og prestsetrið yroi flutt lieim að Hólum. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða var haldinn i sambandi við kirkjufund fyrir Vestfirðingafjórðung á Flateyri 5. og 6. sept.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.