Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 38

Kirkjuritið - 01.11.1936, Page 38
Kirkjuritift. INNLENDAR FRÉTTIR. Starf meðal sjómanna. Norska sjóinannatrúboðið liefir í sumar eins og að undanförnu haldið uppi kristilegu sjómannastarfi á Siglufirði yfir sumarmán- uðina júlí— ágúst, með góðum árangri. Að þessu sinni veitti N. Nielsen, sjómannaprédikari, starfseminni forstöðu. Trúboðið á sjómannaheimili á góðum stað hér í bænum, og er það miðstöð sjómanna, þegar þeir eru í landi, en það eru þeir að jafnaði um helgar. Sjómannaheimilið hefir einnig sjúkrastofur, og er héraðslæknir læknir heimilisins. Starfsemi sjómannatrúboðsins hefir unnio sér fullkomna við- urkenningu meðal bæjarbúa, enda er hegðun og framkoma norskra sjómanna alt önnur nú en hún var, meðan um enga slíka starfsemi var hér að ræða og ekkert sjómannaheimili. Nú er framkoma norskra sjómanna sannarlega til fyrirmyndar íslenzkum sjómönn- um, er dvelja hér yfir síldveiðitímann. Sýnir það ljóslega þörf- ina fyrir samskonar heimili og samskonar starfsemi meðal ís- lenzkra sjómanna. Jóhannes Sigurðsson starfaði hér einnig í sumar, eins og áður í sambandi við norska sjómannaheimilið, en starf hans var frem- ur miðað við þarfir íslenzkra sjómanna. Naut Jóhannes lítils- háttar styrks frá Siglufjarðarbæ. Þeir N. Nielsen og Jóhannes héldu á hverjum sunnudegi sam- eiginlegar guðsþjónustur i Siglufjarðarkirkju. Velvildarhug bæj- armanna til starfseminnar mátti glögglega sjá á fjölmennri kveðju- samkomu, er þeir liéldu í kirkjunni i lok ágústmánaðar, þegar starfið var á enda. f þeirri samkomu tóku þátt, auk þeirra N. N. og .1. S., bæjarfógetinn á Siglufirði og sóknarpresturinn, er töluðu, en karlakórinn „Vísir“ og kirkjukórinn önnuðust sönginn. Kirkjudagur. Kirkjunefnd Siglufjarðarkirkju, er tók lil starfa s.l. sumar, geksl fyrir því, að haldinn var sérstakur kirkjudctffur i söfnuðinum 30. ág. s.I. Kirkjunefndin tók upp þessa fornu liugmynd, en þó i nokkuð nýrri mynd, og skyldi dagurinn nú og framvegis vera afmælis-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.