Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 22
308
Richard Beck:
Október.
við báðar guðsþjónusturnar. Söngflokkar safnaðarins
höfðu sameinað krafta sina við þetta tækifæri og sungu
áhrifamikla liátíðarsöngva undir leiðsögn herra Sigur-
hjörns Sigurðarsonar, söngstjóra eldra söngflokksins; ung-
trú Snjólaug Sigurðsson, organisti kirkjunnar, stýrir yngra
söngflokknum. Gerði liinn ágæti söngur hátíðahöldin
drjúgum veglegri og eftirminnilegri en annars hefði verið.
kins og sæmdi jafn söguríkum viðburði, var kirkjan fag-
urlega prýdd, meðal annars þrem fögrum skjöldum með
upphleyptum myndum af kirkjum safnaðarins.
Velunnurum safnaðarins var það þó vafalaust mesta
íagnaðarefnið á þessum tímamótum í sögu iians, að til-
kynt var við hátíðaguðsþjónusturnar, að 110 manns hefðu
gengið í söfnuðinn á afmælisári Jians, og ber sú aukning
fagurt vitni ágætu starfi prests og safnaðarfólks og sýnir
það, að hann er all annað en í afturför.
En afmælisins var minst á margan annan liátt heldur
en með ofannefndum hátíðarguðsþjónustum. Söngflokkar
safnaðarins héldu afartilkomumikla söngsamkomu i til-
efni afmælisins að kveldi þess 2. nóvembers, er mikiU
mannfjöldi sótti. Frú Sigríður Olsen og Páll Bardal borg-
arfulltrúi sungu einsöngva, en Pálmi Pálmason fiðluleik-
ari skemli með einleik. Á samkomu þessari flutti dr. B. J-
Brandson afbragðserindi, er hann nefndi „Faith of the
Founders“ (Trú safnaðarfeðranna), um stofnun safnaðar-
ins, sögu hans og starf; lagði dr. Brandson áherzlu á það>
hversu heppinn söfnuðurinn hefði verið með kirkjulega
leiðtoga sína, þar sem voru þeir dr. Jón Bjarnason og di •
Björn B. Jónsson, og hversu vel hefði tekist valið á hinuiu
nýja presti safnaðarins, séra Vaidimar J. Eylands. Jali'-
hliða vottaði ræðumaður konum þeirra prestanna virð-
ingu sína og aðdáun.
Af öðrum hátíðahöldum í sambandi við afmælið nia
serstaklega geta um fund þann, er Karlaklúbbur safnaðar-
ins hélt þ. 2(5. október, og voru þar flutt fjögur fróðleg °S
merkileg erindi um sögu safnaðárins: Séra Runólfur