Kirkjuritið - 01.03.1940, Qupperneq 20
Marz.
FramtíðarstÖrf Kirkjuráðsins.
Ég var svo heppinn að eiga þess kost að dvelja erlendis
veturinn 1935—1936. Ég kyntist í þeirri ferð miklu lífi
og miklu starfi. Ég hefi verið að hugsa um það síðan,
hvort ekki væru einliver ráð til þess, að við hér heima gæt-
uin öðlast eitthvað af því mikla lífi og þvi mikla starfi,
sem ég kyntist á ferð minni.
í lögum um kirkjuráð nr. 21, 6. júlí 1931, segir meðal
annars (2. gr..): „Verkefni kirkjuráðsins er að vinna að
eflingu íslenzkrar kristni og styðja að trúar- og menning-
aráhrifum þjókirkjunnar með þvi að a) íhuga og gera
ályktanir um þau mál, sem varða þjóðkirkjuna í heild
og einstaka söfnuði hennar, b) stuðla að frjálsri starfsemi
til eflingar kristnilífi þjóðarinnar, mannúðar- og líknar-
starfsemi.“
Kirkjuráðið hefir nú starfað nærri sjö ár. Það hafa
skipað mætir menn, sem fullan vilja hafa haft á því að
starfa þannig, að eftir kirkjuráðið mætti liggja eitthvað
það, og á ýmsum sviðum, sem verulega þýðingu liefði
fyrir kristnilíf þjóðarinnar, og að fyrir þess tilstilli gæti
aukist að mun starf þjóðkirkjunnar að trúar- og menn-
ingaráhrifum. Kirkjuráðið hefir lagt fullnaðarsamþykkt
á Helgisiðabók þjóðkirkjunnar liina nýju. Það hefir haldið
noklcura fundi árlega, gert ýmiskonar samþyktir, úthlut-
að því litla fé, sem það liefir liaft til umráða, o. s. frv.
Skal það þaklcað, sem þegar er gert. En ég vil, að kirkj-
unni geti notast betur að þessari þörfu og virðulegu stofn-
un. Verulegra átaka gætir of lítið, eða framkvæmda, sem
um munar. Þetta er ekki sagt til ásökunar þeim inönn-
um, sem skipað hafa kirkjuráðið, heldur ér þetta að
kenna því, hversu þeim hefir verið i hendur búið, liversu