Kirkjuritið - 01.03.1940, Side 25
Kirkjuritið. Framtíðarstörf kirkjuráðsins.
103
sænsku stofnunar. í fyrsta lagi þarf kirkjuráðið að hafa
a- m. k. 1 fastan starfsmann og helzt fasta skrifstofu í
Reykjavík. Ég gæti hugsað mér, að þessi starfsmaður
bæri nafnið kirkjuráðsritari. Hvað á svo þessi maður að
gera, og hvað á skrifstofan að annast? Ég kem nú að þvi,
og þá með hliðsjón af starfsemi Diakonistyrelsen í Svíþjóð.
1) Kirkjan þarf að hafa eigin bókaútgáfu. Prestafélagið
hefir undanfarið gefið út nokkrar bækur, sumar ágætar,
°g nú seinustu árin Kirkjuritið, sem við tók af Prestafé-
lagsritinu. Mér kemur til liugar, að kirkjuráðið taki við
þessari útgáfu. Ekki svo að skilja, að Prestafélaginu sé
vantreyst. Heldur virðist mér kirkjuráðið réttari aðili, þar
eð það er skipað fulltrúum presta og leikmanna. En að
sjálfsögðu er það elcki aðalatriðið, hvort útgáfan er í hönd-
um Prestafélagsins eða ekki, heldur hitt, að kirkjan sem
beild hafi sína eigin útgáfu. Stefnt sé í sömu átt sem út-
gáfa Prestafélagsins hefir gert, en aukið við eftir því, sem
möguleikar reynast á. Gæti ekki útgáfa sálmabókarinnar
bomist i hendur kirkjunnar? (Til athugunar: Hversu er
með Biblíuútgáfuna?) Hugsanlegt virðist mér, að starf-
semi kristilegs bókmentafélags ætti að geta fallið undir
þessa útgáfu. Hversvegna getur kirkjan ekki haft sína
allsherjar útgáfu, eins og sagl er að kommúnistar hafi
sma „Heimskringlu" ? — Ég hugsa mér að starfsmaður
kirkjuráðsins ætti að annast alla afgreiðslu og dreifingu.
2) Barnaheimilisnefnd þjóðkirkjunnar reynir að safna
fé til barnaverndarstarfs með því meðal annars að senda
prestum til sölu stjörnur og fermingarkort. Árangur er
ekki mikill og daufar undirtektir. Einn af guðfræðikenn-
urum Háskólans hefir undanfarið af áhuga og velvild
S1nni annast útsendingarstarf og' innheimtu. Við því ætti
starfsmaður kirkjuráðsins að taka. Væri það ekki nokk-
urs virði fyrir þá starfsemi, sem kirkjan vill leggja til
mannúðar- og líknarmála, að geta þannig haft sérstakan
mann til að vinna að þeim? Þegar um þau starfsvið kirkj-
unnar er að ræða, eru verkefnin ótæmandi. Ég minni