Kirkjuritið - 01.03.1940, Síða 32
110
Árni Árnason:
Marz.
kvæmt náttúrulögum. Það gætu verið tímaskifti að þvi,
hvernig þetta gengi, en alt jafnaði sig upp, og enginn þyrfti
að halda, að hér væri máttur að verki, sem þær, frumurn-
ar, ekki þektu né gætu skilið og skynjað. Það, sem hinn
hluti frumanna nefndi æðri stjórn, sál eða jafnvel manns-
anda, væri ekki til. Ég þarf ekki að taka það fram, hvernig
oss myndi lítast á þessa „lífsskoðun“ magafrumanna, og
sumum kann að þykja þetta dæmi öfgakent, óþarft og
óviðeigandi. Dæmið er ekki sett fram sem röksemd, og
því er ekki heldur haldið fram, að magafrumurnar séu vits-
munaverur, en það getur bent oss á afstöðu vora til al-
heimsins og þekkingu, eða öllu heldur þekkingarleysi á
eðli hans. Þá er dæmið engin f jarstæða. Þar við hætist, að
samkvæmt skoðun trúleysingja er hið fjölbreyttasta og
hátíðlegasta andlegt starf aðeins frumustarfsemi, á sinn
hátt eins og magastarfið, með þeim eina mun, að það eru
aðrar frumur, heilafrumurnar, sem að því vinna.
Menn hafa frá upphafi fundið til þess, að líkaminn út
af fyrir sig, áhaldalaus, er ekki nógu öflugur né vel liæfur
til þess að heyja baráttuna fyrir lífinu. Þessi vanmáttar-
tilfinning leiddi til þess, að menn fundu upp og hagnýttu
sér verkfæri og vélar, og þessi sama tilfinning ásamt löng-
un og leit að tækjum til hjálpar og þæginda, sem lienni
hefir verið samfara, hefir orðið undirrót að öllum þeim
framförum, sem orðið hafa í verklegum efnum. Enginn
maður gjörir minna úr framförunum af þeim sökum.
Þessi sama tilfinning eigin smæðar, vanmáttar og van-
þekkingar gagnvart náttúrunni og lögmálum hennar, hef-
ir knúið mannsandann til áreynslu, vaxtar og þroska, lief-
ir knúið fram alla hina miklu leit vísindanna að þekkingu
á náttúrunni og að ráðum til þess að gjöra jörðina sér
undirgefna. Enginn neitar sannleiksgildi vísindanna fyrir
þessar sakir og enginn neitar veruleika rafmagnsins fyrir
þá sök, að mennirnir hafa fengið þekkingu sína á því í
þessari sömu leit. Það eru hinir æðstu liæfileikar manns-
andans, sem koma fram i visindastarfi, listum, siðgæði og