Kirkjuritið - 01.12.1940, Blaðsíða 9
Kirkjuritið. E. M. J.: Ljós í myrkrunum.
331
1 gegnum myrkur heimsins hrópum véj
í hœðirnar til þín, ó, mikli Guð.
Fyrir þinn krafl hver öreind sköpuð er
og öll hin mikla veröld grundvölluð.
Gef þú oss frið og send í sál hvers manns
hið sanna vegarljós, er myrkur fól,
fyltu vorn hug af krafti og kærleik hans,
sem kom til vor og skóp oss hcilög jól.
Réttu út, Guð, þinn reginsterka arm,
rjúfðu þau bönd, er kremja veika sál,
læknaðu sár, er svella’ í þungum harm,
sefaðu ófriðarins heiftarbál.
Lá’t þú ei, drottinn, hníga’ í vetrarval
þá von og trú, er mannkynshjartað ól.
í neyð við hrópum: Heyr vort bænatal,
Þú heimsins mikla Ijós og kærleikssól.
Einar M. Jónsson.