Kirkjuritið - 01.12.1940, Blaðsíða 44
366
S. S.: Vígsla Akureyrarkirkju.
Nóv.—Des.
ar hendur, sóknarprestur, sóknarnefnd og safnaðarmeð-
limir, svo að hundruðum eða jafnvel þúsundum skifti.
Kvenfélag Akureyrarkirkju, með vígslubiskupsfrúna í
fararbroddi, hefir unnið ágætt verk fyrir kirkju sína,
og fjölda margir aðrir. Stórar gjafir, sem ekki er unt
að tilnefna hér, voru gefnar kirkjunni, t. d. gaf Vilhjálm-
ur Þór bankastjóri og kona hans, frú Rannveig, raf-
magnskirkjuorgel (,,Hammond“), Ólafur Ágústsson hús-
gagnameistari og kona lians altarið; silfurbergskrossinn
gaf Gunnar Guðlaugsson.
Að kvöldi vígsludagsins var lialdið fjölment samsæti
á hótel „Gullfoss“, og voru þar fluttar margar ræður
og góðar. Þar töluðu séra Friðrik J. Rafnar vígslubiskup,
Brynleifur Tobíasson, mentaskólakennari, forsætisráð-
herra, Hermann Jónasson, biskupinn, Friðrik prófastur
Friðriksson, Steinn Steinsen, bæjarstjóri og Vilhjáhnur
Þór, bankastjóri. Samsætinu, sem var mjög virðulegt,
stjórnaði Steingrimur Jónsson fyrrum bæjarfógeti.
Það var öllum viðstöddum kirkjunnar mönnum hið
mesta gleðiefni, hve eindregið og ákveðið kom fram í
öllum ræðum þeirra, er töluðu, vinátta og hlýja í garð
kirkjunnar. Ivom þeim ásamt um, að rétt og sjálfsagt
væri, að allir góðir menn legðu lið sitt henni til stvrkt-
ar og málum hennar, með því, að hún hefði hið mikil-
vægasta hlutverk að vinna í þjóðlífinu. Mátti segja, að
allir Akureyringar fylgdust einlniga með þvi, sem var
að gerasl þenna dag, og mun hann verða öllum, er tóku
þátt í því, er fram fór, ógleymanlegur dagur.
Sigurgeir Sigurðsson.