Kirkjuritið - 01.12.1940, Blaðsíða 43
Kirkjuritið.
Vígsla Akureyrarkirkju.
365
íslenzkur blær, og mun húsameistari hafa haft til fyrir-
myndar stuðlabergið, einkum í turnum kirltjunnar, sem
eru tveir. Hæð turnanna er frá jörðu 26 m. Kirkjan er
að utan lögð kvartsmulningi. Ytri lengd kirkjunnar er
34 m. og breidd aðalkirkjunnar 14 m. Hæðin frá gólfi
og upp í hvelfinguna er 8% m. Kirkjan rúmar alls um
550 manns í sætum, en gólfflötur er afarstór, og má enn
fjölga, að talsverðum mun, sætum í kirkjunni. Forkirkja
er allslór, 2,5 X 8,5 m., og úr henni liggja tveir stigar
á þverpall yfir anddyri (söngpall).
Innan á alla veggi kórsins eru settar háar veggþiljur
úr dökkri eik. Bekkir allir og allari eru úr sama efni. í
framhlið altarisins eru tveir fyrstu grísku stafirnir í
Kristsnafninu, og er þar einnig gríski krossinn og tvö-
föld stjarna. Á göflum altaris eru grísku stafirnir alfa
og ómega. Eru merkin lögð gulli. Framan á brík þver-
palls eru sjö lágmyndir, sem Ásmundur Sveinsson mynd-
liöggvari hefir gjört, og tákna þær ýms atvik úr lífi
Krists. Prédikunarstóllinn er skreyttur höggnum gull-
lögðum silfurbergsmolum. Ljósakrónur eru smíðaðar
hér heima af Bjarna og Kristni Péturssonum, mjög liag-
lega gerðar.
Fagurt stórt krossmark, tveggja metra hátt, sem sett
er upp í vegg, er skiftir kór og kirkju, er hin fegursta
prýði í kirkjunni. Sú hlið krossins, s'em að kirkjugestum
snýr, er lögð silfurbergsmolum, og skín ljósið innan úr
krossinum í gegnum þá. Er geislabrotið ljómandi fag-
urt. Má fullyrða, að húsameistara hafi tekist mjög vel,
og nefndu margir kirkjuna, þeir er ræður fluttu vígslu-
daginn, meistaraverk.
1 kirkjulífi Akureyrar, eins og raunar landsins í heild,
er hin nýja kirkja stórt spor i framfaraátt. Samhugur
og samtök ríktu í Akurevrarkaupstað við kirkjusmíðina,
og má segja, að hún sé mjög mikið átak, ekki sízt, er
tillit er tekið til hinna erfiðu tíma, sem yfir liafa gengið
í byggingarmálum þjóðarinnar. Þarna sameinuðust all-