Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 19

Kirkjuritið - 01.12.1940, Side 19
Kirkjuritið. Franz frá Assísí. 341 ætla ég sjálfur að stunda þig.“ „Rétt er það,“ segir hinn, „en hvað getur þú frekar gjört fyrir mig en þeir?“ „Ég skal gjöra alt, sem þú vilt.“ „Jæja þá, þvoðu mér frá hvirfli til ilja, því að svo mikill óþefur er af mér, að mig hryllir við sjálfum mér.“ Þá hitar Frans vatn í skyndi og leggur í ilmgrös, og þar sem heilagar kærleiks- hendur hans snerta manninn, verður hold hans mjúkt og heilt. Öll sár liverfa af líkamanum og hann verður al- bata, og hann skelfur og grætur beisklega: „Yei mér, ég hefði átt skilið eilífa útskúfun fyrir óþolinmæði mína og illmæli.“ — Svo er um önnur kraftaverk Frans, þau eru öll kærleiksverk. Alt lif hans er helgað kærleikanum, og kærleika lians virðast engin takmörk sett. Um góðleik lians við dýrin eru margar átakanlegar sagnir. Á einni trúhoðsferðinni t. d. sá liann fuglahóp og beygði við í áttina til þeirra. Þá þyrptust þeir að hon- um óhræddir, eins og til að hjóða hann velkominn. „Fugl- ar, hræður mínir,“ sagði hann þá, „þið eigið að lofa skap- ara ykkar og elska hann af hjarta. Hann liefir gefið ykk- ur fjaðrirnar að klæðum, vængina til flugs og alt, sem þið þurfið. Hann hefir látið ykkur verða fegursta og leyfir ykkur að lifa í loftinu tæra. Þið þurfið hvorki að sá né uppskera, og þó annast hann um ykkur, stjórnar ykkur og gætir ykkar.“ Þá tóku fuglarnir að sveigja hálsana, breiða út vængina, opna nefin og liorfa á hann þakkaraugum, en hann gekk inn á milli þeirra, strauk þeim og sendi þá loks á burt blessandi. Annað sinn, þegar liann ætlaði að lialda ræðu, klökuðu svölur svo yfir höfði honum, að ekki heyrðist til hans, þá mælti liann: „Nú er það ég, sem á að hafa orðið, svölur systur mínar, hlustið á Guðs orð, verið hljóðar og kyrrar, þang- að til ég liefi lokið máli mínu.“ Á leið yfir vatn eitt gaf ferjumaður honum afarstóran karfa, sem hann hafði veitt. Frans tók fagnandi við, en slepti honum jafnharð- an í vatnið og blessaði yfir liann þar sem hann synti burt.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.