Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 27

Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 27
Kirkjuritið. Fyrir þrjátíu árum. 349 Eu hvað var það, sem dró alt þetta fólk á kirkjustaðinn? Það var fyrst og fremst, hjá öllum þorra manna, ósvikin trúrækni, trygð við hinar aldagömlu, kristnu hugsjónir, og næst þúsund ára gömul erfðavenja (tradition), erfða- venja, sem var einn hinn snarasti þátturinn í andlegu lífi þessarar þjóðar, og um leið i menningu hennar, og það væri merkilegt rannsóknarefni, hvern þátt kirkjan og kirkjugöngur, þrátt fyrir alt, liafa átt i að móta og varð- veita menningu þessarar þjóðar. Af sérstökum ástæðum fór ég mjög snenmia að sækja messur að Flugumýri, sem sé þeim, að foreldrar mínir sáu um kirkjusönginn í fjöldamörg ár, eða þar til orgel kom í kirkjuna, og hélt ég þeim sið að sækja flestar messur að Flugumýri framundir þann tíma er ég fór að heiman. Af þessum ástæðum er hugur minn á einkennilegan og órjúfanlegan hátt bundinn við þessa litlu kirkju. Ég hefi síðan komið í fjöldamargar kirkjur, og flestar miklu stærri og veglegri. Ég hefi komið í hinar fegurstu oddbogadóm- kirkjur, sem fylla hugann tilbeiðslu, fullkomnar bæði að formi og list, með íburðarmiklum lislaverkum og mörg hundruð ára gamalli helgi. En í engri þeirra liefi ég fundið það, sem ég fann i litlu kirkjunni á Flugumýri, þar sem ég sem barn drakk í mig kirkjuhelgina, og lilýddi á hinar fyrstu guðsþjónustur, mér finst að slílc áhrif afsanni það, að maður hafi ekki gagn af neinu öðru en því, sem hann skilji. Á engum stað liefi ég fundið til slíkrar lotningar og helgi sem einmitt í þessari sömu, litlu kirkju, og þegar talað er um fánýti þess að sækja kirkjur, þá vil ég segja það, að þrátt fyrir vanmátt prestanna og kirkjunnar lil að bæta mannkynið og svala hinum dýpstu, andlegu þrám mann- anna, þá á þó litla kix-kjan á Flugumýri, með sínum yfirlæt- islausu og íburðarlausu guðsþjónustum, einliver þau ilök í huga mínum, sem aldrei munu vei'ða þurkuð út, og minn- ingarnar þaðan eru í þeim flokki endurminninga, seixi einna bjartast er yfir, að íxiinsta kosti utan heimilis rníns. Og ég sakna hennar enn þann dag í dag, þessarar gömlu,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.