Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 46

Kirkjuritið - 01.12.1940, Page 46
368 Garðar Svavarsson: Nóv.—Des. Hún er einn þátturinn í fórnfýsi og sjálfsgjöf hins mikla gáfumanns, scm aðeins átti eina ríkjandi sannfæringu, þessa: „Kristi cdt“. Nú skoða eg okkur og Pál að vissu leyti sem „collega“, þótt við munum í öllu aumari bræður. — Við höfum tekið upp sama merkið, sem liann bar fyrir í upphafi. Því álít eg það ekki ótilhlýðilegt, einmitt í sambandi við umræður um samband prests og safnaðar að benda á „diplomati" Iians, knúða fram af kærleikanum, knúða fram af sann- færingunni: Krisli alt. Hún er okkur einnig nauðsynleg, hinum litlu spámönn- um, hinum öftustu í flokknum, til þess að þjónustan lán- ist, til þess að okkur takist að vinna í víngarðinum, til jiess að okkur takist að leiða þjóð vora inn í þá blessun, sem við viljum, til þess, í fám orðum sagt, að okkur tak- ist að ávinna sem flesta fyrir Ivrist. Eg veit ekki, af hverju þetta kemur í hug minn, orðið „diplomati“, og það, sem í því felst, eða þessi orð Jesú, þegar hann sendi frá sér lærisveinana: Verið kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur — og þó — eg veit það. Eg hefi það á tilfinningunni, því að það er margt, sem bendir til þess að það bíði kirkjunnar ef til vill óvenju- legir tímar, tímar, sem reyna á oss alt lil grunns. Ef til vill tímar í líkingu við tíma Páls postula, þegar um það er að etja, hvort kristnin skuli lifa eða deyja. Og hvað höfum við þá annað að gera en að brjóta okk- ur í skeljamola, á stéttinni og í stofunni, á lilaðinu, alls- slaðar milli fjalls og fjöru, hvar sem við erum. Þá ríður á, og það ríður nú strax á, að tengja tengslin, að vera öllum alt, sem Kristur vill, til þess að ávinna sem flesla. Að tengja tengslin við söfnuðinn frá hinum smæsta til hins stærsta, við börnin og unglingana, við verkafólk- ið, við bóndann og sjómanninn, við alla. — Móti þeim öllum verður að streyma hlýja og kærleikur, nákvæm natni og umönnun frá kirkju Krists, — frá okkur. Eg er ekki svartsýnn, ósigur dettur mér ekki í hug.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.