Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 49

Kirkjuritið - 01.12.1940, Síða 49
Iíirkjuritið. Sambú'ð prests og safnaðar. 371 „diplomati“ Páls postula að reyna að vera öllum alt til þess að ávinna sem flesta. — Heimili úr heimili, hús úr liúsi, til að treysta og styrkja og festa. Kanske á þjóðin þá síðar mildar þakkir að færa þessum hóp. E. t. v. kennir í þessu nokkurs kvíða um framtíðina, vonandi reynist liann ástæðulaus. En aldrei getur það þó verið verra að vera viðbúinn. Nýir tímar skapa ný viðhorf, sagði eg — og eg held, að viðhorf þessara tíma i sjálfu eðli sínu auki enn á þýðingu húsvitjana og persónulegs samfélags við söfnuðinn frá því sem áður var, sérstaklega í þéttbýlinu og þó alveg eins út um sveitirnar, því að auðvitað er „maðurinn“ sá sami, hvort heldur hann hýr í sveit eða borg. Það er nú uppi svonefndur „realismi“, eða raunhyggja. Raunar er þessi „realismi“ dálítið athugunarverður og svolítið grunsam- legur, því að hann nær meira út úr augunum, heldur en inn fyrir þau, þ. e. liann beinist meira gegn öðrum og hinu ytra heldur en gegn sjálfum sér og hinu innra. Ef hann hefði ekki þennan galla — ef liann væri heil- steyptur, ef hann beindi gagnrýni sinni jafn hugheilt inn á við eins og hann þykist gera út á við, þá er eg viss um að Kristur ætti greiðari leið og kirkjan betri tíma. En þessi „realismi“ er uppi, hann flæðir enn uppi í yfir- borðinu og okkur er það nauðsynlegt — enn vegna sam- búðarinnar við söfnuðinn — að taka réttmætt tillil til hans. Eg ætla að segja ykkur svolitið dæmi um þetta. Það hefir einhver sagt, að óvinurinn væri bezti spegillinn, því að liann skirrðist ekki við að segja manni napran sannleik- ann. Það er stundum, að minsta kosti stundum, dálítið til í þessu. Jæja, þetta var reyndar ekki óvinur minn, en hann var mér mjög andstæður í skoðunum og hafði e. I. v. einhverja löngun til að þjarma að mér sem presti. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Eg er á móti prestum. Þarna ranglið þið upp í stólinn á sunnudögum, hátíðlegir og hempuklæddir, næstum því eins og einhverjar æðri

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.