Kirkjuritið - 01.12.1942, Síða 14

Kirkjuritið - 01.12.1942, Síða 14
316 Sigurgeir Sigurðsson: Nóv.-Des. stuttu stund. En mig langar þó til að gera tilraun til að rifja upp helztu drættina í hans sterku og svipmiklu mynd, eins og' Jiún kemur mér fyrir sjónir i lifsstarfi lians, og eins og ég sé hann í skuggsjá islenzkrar kristni- sögu og í orðum þeirra manna, sem bezt liafa kynt sér iíf Iians og starf og mest liafa um hann ritað. — Um fæðingardag Guðbrandar Þorlákssonar greina heimild- ir ekki, og raunar er ekki heldur örugg vissa um fæð- ingarárið. Þó ætla menn, að sanni næst sé, að hann sé fæddur árið 1542 að Staðarbakka í Miðfirði, og er þar fylgt heimild séra Arngrims Jónssonar. Hinsvegar þykja eftirmæli, er séra Magnús Ólafsson rektor á Hólum orti um Guðbrand biskup, benda til, að liann muni hafa fæðst að Stað í Hrútafirði. Þar segir: „Fæðing' hlaut í firði veðra framsveitis, þar Staður heitir“. Sé svo, þá mun hann hafa fæðst ári fyrr, eða 1541. — Um þetta má sjálfsagt deila fram og aftur. Skiftir i raun og veru ekki miklu máli, hvort er, en sammála er ég dr Páli Eggert Ólasyni, sem mest og bezt hefir ritað og grafið til heimilda um Guðbrand, að þungt sé á met- unum það, er séra Arngrímur heldur fram um þessi efni. Foreldrar Guðbrands biskups voru séra Þorlákur Hallgrímsson, Sveinbjarnarsonar prófasts i Múla Þórð- arsonar, — og Helga .lónsdóttir. En hún var dóttir Jóns Sigmundssonar lögmanns. Voru þau hjón, séra Þorlák- ur og; Helga, gift af fyrirrennara Guðbrands biskups á Hólastóli, Ólafi biskupi Hjaltasyni, að Stað í Hrútafirði 8. sept. 1555. — Bernskuár Guðbrands liafa án efa verið með líkum svi]) og annara islenzkra drengja i þá daga. Þegar hann komst á legg og' honum gafst þroski og afl, fór hann að taka þátt í algengum sveitastörfum, þeim, er drengjum á hans reki voru ætluð, fjárgæzlu og ýmsum viðvikum heima fyrir, er smávægileg og léttvæg þóttu fullgildum

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.