Kirkjuritið - 01.12.1942, Blaðsíða 16
318
Sigurgeir Sigurðsson:
Nóv.-Des.
lians, eftir að hann er orðinn biskup á íslandi. Meðal
þeirra eru sérstaklega tveir menn, sem Guðbrandur
dáðist að og elskaði, en það voru ])eir Niels Hemming-
sen háskólákennari og Páll Madsen, sem síðar varð Sjá-
landsbiskup. Nú stefndi hugur hans heim til ættlands-
ins ástfólgna, heim til starfa. Námstíma skólaáranna
var lokið, og nú tóku verkefnin að kalla. Má óhætt full-
yrða, að Guðbrandur hafi stundað námið afburða vel
háskólaárin. Auk guðfræðinnar átti hann kost á að
nema í fræðideild háskólans hebresku, grísku, latinu,
mælskulist, eðlisfræði, stærðfræði, rökfræði, kirkjusögu
o. fl., enda sáust þess skýr merki, er út í lífsstarfið kom,
að nám hans hafði verið fjölbreytt. Eftir að hann kom
heim til íslands frá háskólanámi, var haiin þrjá næstu
veturna kennari í Skállioltsskóla. Þá leggur hann út í
prestsstarfið og tekur vígslu til Breiðahólstaðar í Vestur-
hópi. í tvö ár gegndi liann preststarfinu, en gjörisl þá
um eins árs skeið skólameistari á Hólum. Hafði liann
nú i þessum störfum sínum og við dvöl sina á báðum
biskupssetrunum fengið raunhæfa og víðtæka þekkingu
á málum kirkjunnar og þjóðarinnar í heild, og því lík-
ast sem forsjónin hafi verið að búa hann undir að
takasl á hendur hið vandamesta og ábyrgðarþyngsta
starf. Var þess nú skamt að bíða. Árið 1569 var hann
kvaddnr til Ivaupmannahafnar til þess að gjörast Hóla-
biskup og eftirmaður Ólafs biskups Hjaltasonar. Dvaldi
hann þá enn í Kaupmannahöfn veturinn 1570—1571, og
í aprílmánuði rann upp hinn mikli merkisdagur í lífi
hans og jafnframt í kristni og kirkjusögu Islands —
8. apríl. En ])að var vígsludagur Guðbrands biskups.
Var hann vígður í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn,
og hefir það án efa aukið á fegurð, hátíðleik og helgi
dagsins í augum hans, að vigslufaðir lians var kennari
hans og' trygðavinur, Páll Madsen, sem þá var orðinn
Sjálandsbiskup. Að lokinni vígslu liélt hiskup þegar
heim til íslands. Það var vor, og sólin ljómaði um bygðir.