Kirkjuritið - 01.12.1942, Qupperneq 59
Kirkjuritið. Fjögra alda minningarhátíð G. Þ. 3(51
Þá lagði prófastur fram svohljóðandi ályktun fyrir samkomu-
gestina.
„Almennur kirkjufundur, haldinn á Hólum í Hjaltadal á 4 alda
afmæli Guðbrands biskups, gjörir svofelda samþykt:
Fundurinn skorar á útvapsráð að hlutast til um, að varið
verði síðustu mínútum kvöldútvarps miðvikudaga yfir h'ðandi
vetrarmisseri til stuttrar bænargjörðar, þar sem lesinn sé kafli
úr heilagri Ritningu og sunginn sálmur fyrir og eftir og sé þetta
gjört vegna sérstakrar verndar Guðs á þjóð vorri nú á hörmungar-
tímunum.“
Tillagan var samþykt með öllum atkvæðum.
Þá bar prófastur fram fyrir fundinn svofelda áskorun til
Frestafélags norðlenzkra presta.
„Fundurinn skorar á starfandi prestafélög í Hólastipti hinu
forna, að beita sér fyrir því að haldinn verði árlegur kirkjudagur
að Hólum í Hjaltadol til minningar um Guðbrand Hólabiskup
og aðra öndvegismenn hinnar íslenzku kirkju, og sé sá dagur ein-
hvern sunnudaginn í ágústmánuði“. Þessi tillaga var samþykt með
öllum greiddum atkvæðum.
Þá bar oddviti sóknarnefndar Hólasóknar, Arni Sveinssor.
bóndi á Kálfsstöðum, fram áskorun til þingmanna héraðsins um.
að þeir beittu sér fyrir því, að myndum þeim, sem teknar hafa
verið úr Hólakirkju, yrði skilað henni aftur, frummyndunum, en
ekki eftirstælingum. Þessi áskorun var samþykt með öllum greidd-
um atkvæðum.
Þá báru þeir séra Lárus Arnórsson á Miklabæ. Gunnlaugur
kennari Björnsson, Brimnesi, og Ólafur H. Jónsson sýsluráðunaut-
ur á Marbæli fram svohljóðadi ályktun.
„Fundur Skagfirðinga, haldinn að Hólum á 400 ára afmæli Guð-
brands Hólabiskups Þorlákssonar, samþvkkir að kjósa 9 manna
nefnd, er vinni eftir ákveðinni áætlun að sem víðtækastri efl-
ingu Hólastaðar, andlegri sem efnislegri, er miðist við 400 ára
dánarafmæli Jóns biskups Arasonar 7. nóv 1950.“
Tillagan var samþykt með öllum atkvæðum, og í nefndina voru
kosnir: 1. Sigurður Þórðarson alþm. Sauðárkróki. 2. Jón Sig-
urðsson alþm., Iteynistað, 3. .Tóhann Sigurðsson bóndi á Úlfsstöð-
um, 4. séra Halldór Kolbeins prestur á Mælifelli, 5. Gunnlaugur
Björnsson kennari í Brimnesi, 6. Kristján Karlsson skólastjóri á
Hólum, 7. Jón Konráðsson hreppstjóri í Bæ, 8. Hermann Jónsson
hreppsíj. á Ytra-Mói, 9. séra Guðbrandur Björnsson próf. í Hofsósi.
Á meðan á samsætinu stóð, voru haldnar margar ræður og
sungnir ættjarðarsöngvar á milli. Fór það hið bezta fram. Org-
anisti Eyþór Stefánsson stjórnaði söngnum í kirkju og heima á-