Kirkjuritið - 01.12.1949, Qupperneq 106
356
KIRKJURITIÐ
En hvað er svo unnið við útgáfu safnaðarblaðs? Tilgang-
ur minn með því er sá, að sá boðskapur, sem ég hefi heit-
ið að boða, skuli ná til fólksins, þótt það komi ekki til
kirkju hjá mér til þess að hlýða á hann þar. Með það
fyrir augum reyni ég að velja og raða efni blaðsins. Fyrsta
blaðsíðan verður oftast fyrst fyrir augum lesandans. Þar
hefi ég einhver orð Krists eða einhver önnur úr Biblíunni,
og hugleiðingu í tilefni útgáfudagsins, sem er sunnudagur
eða hátíðisdagur. Augu lesandans hljóta að staðnæmast
við einhver þessara orða, og jafnvel ein setning getur snort-
ið hug lesandans dýpra en löng ræða, gerð við skrifborðið.
Á annarri blaðsíðu er nú saga af píslarvotti. Hún er áhrifa-
mikil og talar máli hins óbilgjarna fórnarkærleika vegna
Krists. Á 3. blaðsíðu er oftast ljóð og hugleiðing, annað
hvort frá mér eða öðrum. Á 4. blaðsíðu er samtíningur,
þar sem fyrst eru gátur og þrautir, en oftast einnig fagr-
ar smásögur eða laglegar skrítlur o. fl. Á 5. blaðsíðu eru
fréttir úr söfnuðunum. Á. 6. blaðsíðu er annar dálkurinn
ýmislegt frá liðnum árum, en í hinum sögur og íhugunar-
efni fyrir yngstu lesendurna.
Blaðið kemur svo út á 3ja og 4ra vikna fresti. Þótt
þetta blað sé aðallega ætlað sem safnaðarblað á Bíldudal,
er það þó talsvert keypt annars staðar á landinu. Á Bíldu-
dal má svo heita, að það sé keypt á hverju heimili, og þar
gefa sumir meira verð fyrir það en upp er sett, til þess
að styrkja það.
Ég hefi nú lauslega lýst fyrir yður blaði þessu, en ég
vona þó, að yður sé ljóst af því, hvernig ég tel að árangri
verði náð með útgáfu slíks blaðs.
Oft er starfi prestsins líkt við starf sáðmannsins, en á
þeirri líkingu er nokkur misbrestur, því að árangurinn af
starfi sáðmannsins verður sýnilegur, þegar uppskera hefst,
en sýnilegur verður sjaldan til fulls árangurinn af starfi
prestsins. Að mínu áliti er því líkt farið um safnaðarblöð-
in. Ég er oft spurður að því, hvenær næsta blað komi, en
ég er ekki viss um, af hverju ég er spurður þannig, þ. e.