Kirkjuritið - 01.12.1949, Page 110
Ævafom Gamla testamentis handrit
fundin.
Um haustið 1947 hélt geitahirðir nokkur hjörð sinni á beit
í óbyggðinni norðaustur af Dauðahafi, ekki langt suður frá
Jeríkó. Honum varð vant einnar geitar og fór að leita hennar
vestur í hlíðardrögunum. Kom hann þá auga á lítið, kringlótt
hellisop í klettunum fyrir ofan sig. Hann klifraði upp og sá,
að hellirinn myndi vera djúpur. — Hann kastaði inn steini
til þess að kanna hann. Þá heyrði hann brothljóð, og hnykkti
við og hafði sig á burt. Skömmu síðar fór hann aftur upp að
munnanum og hafði þá vin sinn með sér. Þeir skriðu inn um
opið og komu auga á stór ker á hellisgólfinu. Eitt þeirra var
nýbrotið, og umhverfis lágu gömul brot, en sum kerin voru
heil.
Þeir félagar hugðu, að þar myndi geymt gull og silfur og
flýttu sér að athuga innihaldið. Það var þá bókfell vafið upp,
og skrifað á letur, sem þeir þekktu ekki. Þeir höfðu út með
sér 8 roðla eða bókrollur og skiftu þeim jafnt á milli sín.
Annar þeirra kom sínum 4 til Hebreska háskólans í Jerúsalem,
en hinn sínum til Markúsarklaustursins sýrlenzka þar í borg-
inni. Þaðan komust þrír roðlarnir til Vesturheims, og með
nokkurri leynd. Þar hafa þeir síðan verið rannsakaðir eins
og aðrar fornleifar frá Austurlöndum og teknar af þeim ljós-
myndir.
Um þessar rannsóknir var lengi hljótt. En fyrstu fregnir,
sem bárust út um heiminn, voru á þá leið, að þetta væru elztu
Gamla testamentis handritin, sem fundizt hefðu, rituð á
hebreska tungu. Á Gyðingalandi sjálfu var lítið aðhafzt. Olli
því innanlandsófriðurinn. Og ekki hafði öðrum en munkun-
um í Markúsarklaustri verið sagt frá því, hvar fornleifahellir-
inn var.
Þegar um hægðist þar í landi, var hafin leit að hellinum,
og tókst að finna hann aftur í febrúarmánuði síðast liðnum.
í marz var byrjað á forminjarannsóknum og grefti, og stóðu
að þeim Biblíufræðingar og fornfræðingar.
Merkasti roðullinn af þeim 8, sem fundizt höfðu, var spá-
dómsbók Jesaja. Hann er nær 7 metrar á lengd og óskemmdur
að kalla. Annar var skýringar yfir rit Habakúks. Þriðji apokrýf