Kirkjuritið - 01.04.1951, Side 26
116
KIRKJURITIÐ
36, eða miklu fleiri en nokkuru sinni áður í sögu Háskól-
ans eða Prestaskólans, svo að nægur fjöldi virðist munu
verða guðfræðinga á næstu árum til að sækja um laus
prestaköll, enda þótt þeim verði ekki fækkað um eitt.
Ef til vill hefir nefndin ekki vitað það, að sums staðar
er alls ekkert prestsseturshús til. Annars staðar eru prest-
unum ætluð svo bágborin húsakynni, að þeir þora ekki
að bjóða þau konu sinni og börnum, hvað sem þeim sjálf-
um kynni að líða. Og þó — að minnsta kosti hefir nefnd-
inni verið kunnugt um „prestsseturshúsið“ í Staðarhóls-
þingum, þessu blómlega og fornfræga prestakalli með
þremur sóknum og nær 400 manns. Af hverju hefir eng-
inn sótt um það? Eingöngu af því, að prestinum þar er
aðeins ætlaður til íbúðar kjallari, sem vellur út í slaga.
Hefði það nú ekki verið geðfelldari leið, að gjöra við kjall-
arann og byggja ofan á hann en leggja prestakallið niður?
Og hvað myndu hlutaðeigandi söfnuðir sjálfir segja?
Einn nefndarmannanna (S. Ó. Ó.) var mjög andvígur
þessari afgreiðslu nefndarinnar og taldi m. a. ekki hæfa
að bíða ekki heimkomu biskups vestan um haf, þar setfi
hann hafði dvalizt um skeið sér til heilsubótar, mætti ekki
minna vera en að hann fengi að segja álit sitt á málinu-
Fleiri voru mótfallnir þessari málsmeðferð, og var borin
fram svofelld dagskrártillaga (G. J.):
„Með því að ljóst er, að menntamálanefnd hefir ekki
tekizt, þrátt fyrir góða viðleitni og mikið starf, að gera
þær breytingar á frv., sem prestastéttin og forustumenn
kirkjunnar sýnast geta fellt sig við, og í trausti þess, að
ríkisstjórnin láti undirbúa málið betur fyrir næsta þinS
og taki þá m. a. til athugunar, hvort ekki sé rétt að stofna
heiðursprestakall á Þingvöllum og á Rafnseyri, og enn-
fremur að leita umsagnar viðkomandi sóknarnefnda um
fyrirhugaðar breytingar á prestaköllum í landinu, — tekur
deildin fyrir næsta mál á dagskrá."
Tillaga þessi var felld, en málið afgreitt til Neðri deildar
með þeirri breytingu frá upphaflegum tillögum nefndar-