Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 52

Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 52
142 KIRKJURITIÐ Saga hans verður ekki rakin hér, enda eflaust flestum Islendingum kunn. Jón Arason var ekki helgur maður, meinlætamaður eða dýrlingur í venjulegri merkingu þess orðs og hefir eflaust ekki gert kröfu til að vera talinn það, en hann var í senn trúr sonur kirkju sinnar og þjóðar og jafnframt ríkilátur og umsvifamikill höfðingi með norrænu víkingseðli. Ver- aldarvafstur hans verður að dæmast í Ijósi samtíðarsögu hans. En því mega Islendingar aldrei gleyma, að Jón Ara- son er þrátt fyrir breyskleika sinn píslarvottur ekki aðeins trúar sinnar, heldur lands síns og þjóðar og sá eini, sern úthellt hefir blóði sínu í baráttunni gegn kúgun og ofbeldi erlends valds. I raun og veru hefði hann því fremur en Jón ögmundsson og Þorlákur helgi átt skilið að takast í dýrlinga tölu kirkju sinnar og vafalaust ætti hann öðrum fremur að skoðast dýrlingur þjóðar sinnar. m. Vér íslendingar höfum nú undanfarið mjög minnzt hins endurheimta sjálfsforræðis þjóðarinnar og margra mætra manna, sem tekið hafa þátt í frelsisbaráttu hennar, eins og réttmætt og sjálfsagt hefir verið, en ég minnist ÞesS ekki, að þar hafi Jóns Arasonar verið getið. Jón Sigurðs- son sæmdi þó Jón Arason þeim heiðri að kalla hann „síð' asta Islendinginn", þ. e. þann síðasta, sem veitt hafi með nokkru afli og myndugleika viðnám gegn erlendri kúgun og frelsisráni. Þegar Jón Arason og synir hans voru án dóms og luSa hálshöggnir í Skálholti 7. nóv. 1550, voru liðnar nær 3 aldir frá því að Islendingar seldu sjálfsforræði sitt í hend- ur Noregskonungi. Konungsvaldið hafði frá þeim tíma verið að smá færa sig upp á skaftið. Gamli sáttmáli hafð1 verið margrofinn. Erlendir embættismenn, sem flestir voru landinu óþarfir, höfðu t. d. setið hér í embættum. Ýms lög voru sett landi og þjóð til óþurftar og ekki hirt um

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.