Kirkjuritið - 01.04.1951, Page 62
152
KIRKJURITIÐ
um landið. Á þessum mótum töluðu 9 prestar og 6 þeirra mess-
uðu á mótunum. Samvinna milli kirkjunnar og U.M.F.Í. virðist
því vera mikil og góð, enda er sambandsstjórinn prestur — sr.
Eiríkur á Núpi.
★
Þegar sr. Eggert var prestur í Vogsósum og hafði Krýsuvík
fyrir annexíu, stóð hann undir tveim próföstum og átti að
sækja héraðsfundi bæði að Hraungerði og í Reykjavík.
★
Harry Emerson Fosdick, fyrrum prestur við Árbakkakirkj-
una í New York, er nú 82 ára að aldri. Síðasta bók hans er
nýkomin út. Hún fjallar um ævi Jesú og heitir: Maðurinn fra
Nazaret.
★
.... Frelsið, jöfnuðurinn, allt, sem miðar að því að maður-
inn fái notið sem bezt og sem mest alhliða sinna andlegu hæfi'
leika, — allt þetta væri hrein vitleysa, alger meiningarleysa,
ef á bak við væri ekki sú lífsskoðun og trúarvissa, að hver
mannvera, hve lítilsigld og lítilf jörleg sem hún virðist, eigi ser
sinn tilgang og þar með sinn lífsrétt, sína lífshelgi, eigi sér
möguleika til að þróast og þroskast til guðlegs upphafs. Þetta
er sá sannleiki, sem vér viljum allir þjóna.... (Úr nýársboð-
skap G. Hagalíns).
★
Fyrir 60 árum flutti sr. Ólafur frikirkjuprestur (þá í Gutt-
ormshaga) fyrirlestur í Reykjavík, er hann nefndi: Hvemig
líður kirkju- og trúarlífinu á íslandi? Áheyrendur voru um 50.
Ræðumanni fannst mörgu vera ábótavant. Þetta sagði hann
um héraðsfundina: „Kirkjureikningamir eru víðast á héraðs-
fundunum aðalmálið; verður helzt lífsmark með fulltrúunum,
meðan verið er að ræða um ljóstollana, það er meira að segja,
að það getur komizt dálítill hiti í menn, þegar verið er að rseða
um, hvort þessi kirkjan eða hin á að hafa 10 eða 12 pd. af tólg
til lýsingar um árið eða kirkjuhaldarinn á að fá 50 eða 60 aura
í graftólalán fyrir hverja jarðarför.“