Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1960, Qupperneq 35

Kirkjuritið - 01.11.1960, Qupperneq 35
KIRKJURITID 417 Þegar svo Kristur kom, byggði hann á þessari erfikenningu og jók við hana. Og hann vakti nýja fræðara, sem fluttu enn fyllri kenningu og lagði grunn hinnar nýju fræðslu. Biblían er frásögn um gjörðir Guðs. Vér lesum hana til að fræðast um starfsemi Guðs og hvernig mennirnir snúast við Guði. Lesendur Siblíunnar ættu að sjálfsögðu að byrja á guðspjöllunum. Þau eru frásagan um það, hver Kristur var og hvað hann sagði og Sjörði. Og í Postulasögunni og af bréfunum kynnumst vér því, hvernig kirkjan var og vann á sínum fyrstu vordögum, þegar Kristur var henni ferskastur í minni og hún gekk beint að því verki að bylta heiminum — umbreyta honum. Þér er bezt að hynna þér það af eigin sjón. Gamla testamentið er öllu erfiðara aflestrar, — það nær yfir 1000 ára skeið — og þér er hentast að hafa einhvern leiðbein- anda við lestur þess. En sízt skortir á, að þar séu margir áhrifa- miklir kaflar, og það sýni þér ljóslega hvernig Guðs eignarlýður hraut Kristi brautina fyrir handleiðslu Guðs. Því ekki skaltu halda, að Drottinn Kristur hafi komið sem af tilviljun eða eins °& þruma úr heiðskíru lofti. Ef þú kynnir þér, hvað var á und- an gengið, blandast þér ekki hugur um, að koma hans var einn iiðurinn í ráðsályktun Guðs — og þá skilst þér betur, hvert vér °g kirkjan eigum að stefna nú á dögum. Lestu því Biblíuna kostgæfilega. Láttu þig engu skipta þá kafla, sem þú skilur ekki; það er meira en nægilegt, sem öll- nm er auðskilið. Ekkert er til, sem gengur manni eins til hjarta °S er til slíkrar hugstyrkingar sem orð og gjörðir Krists. Þess Vegna áminnir kirkjan þig um að lesa Ritninguna, ef þér er nmhugað um að fylgja Kristi ráðnum huga. Hann talar til þín af spjöldum Ritningarinnar — og áminnir oss um að gæta siða v°rra og markmiða. G. F. Fisher erkibiskup (G.Á.). 27

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.