Kirkjuritið - 01.01.1967, Blaðsíða 50
Minningarsjóður
um forsetafrú Dóru Þórhallsdóttur
Hinn 23. febrúar 1965 stofnaíVi Forseti Tslamls lierra Ásgeir
Ásgeirsson, börn hans og tengdabörn, minningarsjóS um
forsetafrú Dórn Þórballsdóttur, og liafa ]>au nú lagt fram allt
stofnfé sjóðsins kr. 300.000.00.
Tilgangur sjóðsins skal vera að reisa Minningarkirkju á
fæðingarstað Jóns Sigurðssonar á Rafnseyri við Arnarfjörð.
Auk stofnfjárins liafa sjóðnum ]>egar borizt nokkrar minn-
ingargjafir.
Sjóðurinn er í vörzlu biskupsembættisins, og er gjöfuni til
bans veitt viðtaka í skrifstofu biskups að Klapparstíg 27.
Biskupsstofa
Æskulýðssálmur
TIGNIÐ þann Guð, sem hefur öld af öld
andríkiskrafti magnað þjóða fjöld
til þess að leita lifsins æðsta kjarna,
ljósmetta sálir allra heimsins barna,
vekja og efla sannar dagfars dyggðir,
deyfa — og eyða — hvers kyns viðurstyggðir.
TIGNIÐ þann Guð, sem beinir hæzt i hæð
hugsunum manna — ofar duftsins smæð
lifið að bæta, fegra, göfga, glæða
góðvild og samúð, hjartasárin græða,
skapa úr draumsýn bjarta byggð á jörð,
bræðralags samkór, virka kærleiks hjörð.
Magnús frá Skógi.