Kirkjuritið - 01.12.1968, Qupperneq 8

Kirkjuritið - 01.12.1968, Qupperneq 8
KIRKJURITIÐ 470 á henni, dregst liula yfir kærleika Guðs. Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann liugsaði — nei, að liann sagði — nei. Svo eru ekki orð ritningarinnar. Heldur: „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn. Og það er ofur ein- falt mál, að ef tilvera Jesú Krists liófst á þeirri stundu, er liann fæddist á þessa jörð, þá hefði enginn sonur verið til á himnunv til að gefa og senda í fyllingu tímans. Vér kynnumst því, hví- líkt djúp móðurástin felur í sér, af þeim anda sjálfsfórnunar, sem hún sýnir og aldrei bregzt. Vér sannfærumst um, hversu ættjarðarvinuriini elskar land sitt, þegar hann er fvis að leggja líf sitt í sölurnar fyrir það. Og með sama liætti kynnumst vér elsku Guðs, ekki af fegurð sumarblíðu né fjallahláma, lieldur af sjálfsfórnarverki, sem er undursamlegra en jafnvel það, er móðurelska og föðurlandsást fá afrekað. Það er ekki nægilegt að segja mér, að Guð elski mig. Ég hefi séð of mikið af þraut og kvöl og sárum hörmum í lífinu til þess. Ef telja á oss trú um, að Guð láti sér annt um oss, þá verður að sýna oss franv á, að hann hafi lagt það í sölurnar fyrir oss, sem honum var dýrmætt. Og það verður aldrei unnt, ef Kristur átti enga for- tilveru hjá Guði; ef liann hafði ekki elskað soninn, áður en stjömurnar urðu til. Þá var enginn sonur til að senda og gefa í fylling tímans. Ef þér sviftið burtu fortilveru Krists, þá verð- ur elska Guðs ekki annað en ágizkan manna og lieilabrot. Ér verð þá að finna liana í viðburðum lífsins, og sumir þeirra eru svo blóðugir, að mér liættir við að draga aðra ályktun af þeim. Þá verð ég að vinna verk mitt, ganga á móti sérhverri raun lífsins, hera þjáning mína og byrði og síðast þola dauða? án þess að hafa annað að styðjast við í þessari skuggatilveru en skuggann af þrá minni og grun vonar minnar. Vinir mínir! Það er ekki sú trú, sem gerir rnenn að sigurvegurum. En ver vinnum meira en sigur fyrir liann, sem elskaði oss. Það þarf að vera meira en tilgáta — vér þurfum að vita það með vissu- Og um þá mikilvægu staðreynd fæst engin fullkomin vissa, ef enginn hefir stigið niður til vor, ef orðið liefir aldrei orðið hold og búið meðal mannanna. Vér getum snúið oss að náttúrunni og spurt: „Er Guð kær- leikur?“ Og náttúran sýnir oss jarðskjálfta, æðandi vinda og liaf, sem kollvarpa völtum fleyjum veikra manna og hylja líkami þeirri í öldunum. Náttúran sýnir oss oftlega miskunn-

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.