Kirkjuritið - 01.12.1968, Blaðsíða 24
Gunnar Árnason:
Pistlar
GleSileg jól!
Gömul sögn í nýju Ijósi
Tæknin er undraverð. Á því máli erum við öll. Með lienni
hefur tekist að gera gömlu ævintýrin að veruleika. Það er
dásamlegt að geta flogið enn liærra, enn víðar en fuglarnir —
senn til annarra stjarna. Undursamlegt að sjá og heyra daglega
það, sem gerist livar sem er í heiminum. Furðulegar risafram-
kvæmdir blasa við augum. Þeim, sem kemur að Búrfelli eystra
finnst líkara sem tröll liafi verið þar að verki en aðeins
mennskir menn. Jarðgöngin og önnur veksummerki eru svo
stórkostleg. Þar er einnig vísbending þess livernig tæknin létt-
ir störfum af mörgum liöndum, svo að víða færist nú meir og
meir í það óskahorf fjöldans að ekki þurfi að vinna nenia
tiltölulega fáar stundir fimm daga í viku, því að vinnan er
nú víða talin fremur lítillækkandi ok en óþrotleg ánægjulind
og auðsuppspretta.
Tölvan er ein töfrasmíðin og er sögð liverri völvu fjölfróð-
ari og öruggari.
Yið erum líka sem steinilostin yfir þeim fréttum að til seu
gjöreyðingarvopn, sem ætlað er að fái afmáð mikinn liluta
mannkynsins svo að segja á svipstundu, og ef til vill sundrað
hnettinum. En slíkt er á hinn bóginn ekki lítil liuggun þeim
sem halda að fullkomnun hernaðartækninnar sé mikilsverðasta
úrræðið til verndunar friðinum.
En sú er ein trúin, sem menn eru ekki sammála um.
Aðrar liliðar tæknimálanna vekja einnig torráðnar gátur og
myrkva sjónliringinn.
Tæknin er engin guð, þótt á liana sé trúað. Þótt liún geti
umskapað mannlífið og meira að segja tortímt því, þarf hug-
vit til að finna hana upp og stjórna henni.