Kirkjuritið - 01.12.1968, Blaðsíða 35
KIIÍKJUIUTIÐ
497
The Adventure of Living
eftir svissneska lœkninn Paul Tournier.
SCM PRESS Ltd. 243 bls.
Ég hefi lesið nokkuð margar bækur eftir Tournier og því
fleiri þeirra sem ég les, þeim mun vænna þykir mér um
manninn. Tournier gefur mikið af sjálfum sér í bókum sínum,
bann ræðir við lesendann, kemur nærri honum. Stíllinn mót-
ast fremur af samtali en eintali.
Sumum kaim að þykja bókin of rabbkennd, að höfundur-
inn tali of mikið um sjálfan sig. En að minni liyggju er bér
fólgið gildi bókarinnar. Tournier mælir sem maður við mann,
hann er sér meðvitandi um lesandann í liverri málsgrein. Hann
mælir af óvenjulegri mannþekkingu og trúarblýju.
Innibald bókarinnar er hversdagslegt á yfirborðinu, eink
um fyrsti hlutinn, en síðar koma lirein gullkorn, þar sem
Tournier talar um það, livað sé í raun og veru að komast
áfram og takast lífið vel.
Bókinni er skipt í þrjá hluta: 1. Ævintýrið, II. Áliættan,
III. Valið. Fjallað er um liina eðlilegu livöt mannsins að
vilja kanna nýjar slóðir reyna meira, sjá fleira og vaxa. í
öðrum lilutanum er rætt mn það, bvernig fjöldi fólks hikar,
þorir ekki að taka lífið og lifa því, og hættur og óheilbrigði
sem fylgja því að liika við að taka gjöfum lífsins. Kristn-
um mönnum liættir til að afsaka eða fela sína eigin vantrú
undir því yfirskini, að lífið byrji fyrst eftir dauðann. Afneit-
un á lífinu, flótti frá lífinu, er afneitun á Guði og flótti frá
Guði.
Hjá okkur togast á löngun til ævintýra og vaxtar aimars
vegar, en löngun til að njóta öryggis liins vegar. Nú er ekkert
öryggi, nema Guð, með Guði getum við hætt öllu, leitað stöð-
ugt nýrra ævintýra. Jafnvel dauðinn, sem binn mesti ósigur,
hin mesta liætta, verður kristnum manni ævintýri, nýtt land,
uý von.
„Að skilja lífið er að skilja Guð,“ segir Tournier.
I. I.
32