Kirkjuritið - 01.12.1968, Page 9
KIRKJUIIITIÐ
471
arleysi. Vér snúum oss að lífi Jesú sjálfs op væntum þar að
sjá vott um elsku Guðs. En sjá, kross og um síðir þetta hróp:
,,Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ — En
svo elskaði Guð heiminn að liann gaf sinn eingetinn son. Ef
þér getið trúað því, að þessi orð birti oss hjarta sögunnar, þá
getum vér látið bíða að fá lausn á mörgu, unz aftur eldir og
morguninn kemur. En þau orð eru meiningarlaus og styðjast
ekki við neinn veruleika, ef Kristur byrjaði að vera til, þá er
liann fæddist hér í heimi.
1 öðru lagi, ef vér missum sjónar á fortilveru Krists, þá
dregst liula yfir hið dýrlegasta við líf Krists. Ég neita því ekki
að fegurð þess liafi mikil áhrif á oss fyrir því, en það fyllir
oss eigi framar eins mikilli lotningu, og ríkidómur náðarinnar
rýrnar. Því að náð drottins vors Jesú ICrists var vissulega ekki
í því fólgin, að hann var fátækur. Náð drottins vors Jesú Krists
er í þessu fólgin, að þótt hann ríkur vœri, þá gjörðist liann
vor vegna fátækur. Það er þetta, sem gagntekið hefir hjörtu
manna og fyllt þau lotningu — ekki það, að liann, sem þeir
tilbáðu, var þjónn heldur hitt, að þótt liann væri í Guðs mynd,
tók hann á sig þjónsmynd af fúsum vilja. Þér.munið eftir frá-
sögn N. tm. um fótaþvottinn. Þegar kveldmáltíðinni var lokið,
lagði J esús af sér yfirhöfnina, tók líndúk og þvoði fætur læri-
sveina sinna. Það er smámynd af því þjónslífi, er þá var nær
því á enda hér á jörðu. Og það sem fyllt hefir menn lotningu,
er þeir hafa hugsað um þjónsstarf Krists, er ekki lítilmótleik-
ur vinnunnar, heldur það, að til þess að gefa sig að þjónsstarf-
inu og beygja sig yfir stritið, hafði hann lagt af sér yfirhöfn
eilífðarinnar. Ef þér ætlið að niiða allt við fæðinguna í Betle-
hem og telja allt frá þeirri stundu, þá verður fátt eftir nema
fátækt Krists. Hann er þá einn af þeim hetjuhóp, sem hafa
þjónað og barist liraustlega við kreddufestu og hleypidóma og
horið lægra hlut fyrir ofureflinu. Þótt slík karlmennska veki
æfinlega aðdáun, þá var það ekki hrifningin út af slíku, sem
grundvallaði kristindóminn og umbreytti hjörtum manna og
kveikti aðdáun aldanna. Þér þekkið náð drottins vors Jesú
Krists að hann þótt ríkur væri, gjörðist yðar vegna fátækur, til
þess að þér auðguðust af fátækt lians. Hið undursamlega við
bann, sem gagntók hjörtu mannanna, var ekki fátæktin; það