Kirkjuritið - 01.12.1968, Qupperneq 11
KIIIKJ L'lt ITID
473
finna nú fyrst og fremst til þess, live afskaplega sniár þessi
linöttur er, sem mannkynið byggir. Og af Jjví leiðir annað:
uienn finna nú til þess, hve maðurinn sýnist óendanlega smár
og lítilfjörlegur, þegar liann er borinn saman við vídd allieims-
ins. Það liefir lagst skuggi yfir vegsemdartilfinning og dramb-
semi liinna eldri kynslóða í því efni. Hvað er maðurinn, að
skapari albeimsins minnist lians — þessarar dægurflugu á fjar-
lægum, smáum fylgilinelti? Sjálf ritningin segir, að líf manns-
*ns sé andgustur einn, og livað er þá maðurinn á þessari örlitlu
jörðu, sem er eins og sandkorn á sjávarströnd borið sanian við
;dvídd bins ómælanlega alheims? Vér getum ekki neitað því, að
sú tilfinning liggur nærri, að oss fari að finnast vér vera ekki
neitt. En þá er oss sem lækning að liugsa um þetta: svo elskaði
Ouð lieiminn, að liann gaf sinn eingetinn son fyrir oss öll,
fyrir þig og mig. Kristur íklæddist ekki eðli englanna; liann
íklæddist mannlegu lioldi, fæddist af sæði Abrahams. Hann,
kinn eilífi guðssonur kom fram að ytra liætti sem maður. En
ef það er sögulega satt, þá getur það ekki verið lítihnótlegt
að vera maður. Þótt jörðin sé smá og líkamslíf vort sé báð
gröf og dauða, þá er eittbvað stórfellt og vegsamlegt að vera
Uiaður, úr því að Orðið varð liold og bjó með oss. — Þær
stundir koma fyrir oss, að vér finnum, bve báleitt það er að
Vera gæddur eðli mannlegs anda. En vér þörfnumst þess, að
sú tilfinning fái staðfesting af staðreyndum sögunnar og
reynslunnar. Og vér fáum bana í þessum djúpa og hátíðlega
Sí>nnleika, að orðið varð liold og bjó með oss. Mitt í erfiðleik-
ftn lífsins og þegar vér finnum bvað mest til vanmáttar vors,
bá geta þau orð styrkt trú vora á gildi mannsins og mannlegrar
tilveru. Þá geta þau ómað inn í sál vora, líkt og klukkna-
^djómur gerir stundum á sænum innan um storminn frá klukk-
l,rn, sem komið er fyrir á duflum úti fyrir bafnarmannvirkj-
u,n eða nálægt hættulegum skerjum. Vér getum aldrei gert
lítið úr manninum, ef Guðs eilífi sonur gerðist maður. Það
er ekki unnt að fyrirlíta manneðlið, ef hann tók á sig mynd
•nannlegs eðlis og íklæddist mannlegu boldi. En vér getum
aúlrei verið algerlega öruggir um óendanlegt gildi mannanna
1 augum Guðs, ef Kristur byrjaði þá fyrst að vera til, er bann
^ddist á þessa jörð.
Rarn er oss fœtt. Já, fögnuður jólanna er í því fólginn. Sá