Kirkjuritið - 01.12.1968, Page 42

Kirkjuritið - 01.12.1968, Page 42
Eysteinn Eymundsson: Gott og illt Hvað er gott op liv'að er illt? Þannig livgg ég að margur lnigs- andi maður spyrji sjálfan sig bæði fyrr og síðar og er það að vonum. Nú munu margir segja: Gott og illt, já, er nokkur vandi að svara þeirri spurningu? Er ekki allt vont, sem varðar við lög, svo sem manndráp, þ jófnaður, rán, svik o. s. frv. að ég nefni ekki styrjaldir? Já styrjaldir, þegar ég nefni þær get ég aldrei lofað gjafarann allra góðra hluta nóg fyrir það, að við Islend- ingar erum lausir við allar þær miklu hörmungar, sem þær hafa í för ineð sér, því enda þótt við liöfum heyrt og lesið um þær, lield ég samt að við getum ekki gert okkur í hugarlund allai' l>ær eymdir, sem af þessu leiða. Hins vegar munt þú spyrja: Gott, já, er ekki öll líknar- starfsemi góð, og allt sem miðar að því að bæta lífskjör manna og fegra mannlífið? Jú, vissulega, en málið er að mínum dómi ekki svona einfalt. Það er haft eftir mér vitrari manni, að hann liafi oft spurt menn þessarar spurningar og enginn getað svarað henni. Nú ætla ég samt að reyna að svara henni, en tek það fram, að ég ætla mér ekki þá dul að ég sé liér að koma með neitt nýtt, aðeins segja mína skoðun. Þótt heyrst hafi raddir frá kennimönnum kirkjunnar um þetta þá hefur þar að mínum dómi ekki verið kveðið nógu fast að orði í þessu afar mikil- vægu máli sem skiptir okkur öll svo miklu. Víst er það erfitt fyrir okkur, veikar og ófullkomnar mannverur, að tileinka oss eðli þess, og liegða okkur í samræmi við það þótt þad hljóti svo að vera.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.